Innlent

Sakar framkvæmdastjóra Keilis um langvinnt einelti

Viktoría Hermannsdóttir skrifar
Maðurinn hafði starfað hjá Keili frá 2008. Hann segir eineltið hafa byrjað eftir að hann fór fram á launaleiðréttingu fyrir hönd starfsmanna sem trúnaðarmaður þeirra.
Maðurinn hafði starfað hjá Keili frá 2008. Hann segir eineltið hafa byrjað eftir að hann fór fram á launaleiðréttingu fyrir hönd starfsmanna sem trúnaðarmaður þeirra.
Starfsmaður hjá Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, sakar framkvæmdastjórann, Hjálmar Árnason, um langvinnt einelti gagnvart sér. Þetta kemur fram í bréfi sem lögmaður starfsmannsins sendi fyrir hans hönd til yfirstjórnar Keilis í byrjun september.

Starfsmaðurinn hefur starfað á Keili frá árinu 2008 og var trúnaðarmaður starfsmanna frá árinu 2011. Samkvæmt bréfinu hófst hið meinta einelti eftir að hann fór fram á leiðréttingu launakjara hjá félaginu fyrir hönd starfsmanna. Í kjölfarið hafi hann fundað með fjármálastjóra félagsins og daginn eftir þann fund hafi framkvæmdastjórinn boðað hann á sinn fund þar sem hann, samkvæmt bréfinu: „hellti sér yfir hann með óviðeigandi fúkyrði og hótunum.“

Í kjölfarið hafi eineltið ágerst og í sjö mánuði hafi starfsmaðurinn mátt „þola ótrúlega aðför“ af hálfu framkvæmdastjórans. Eineltið hafi meðal annars falist í því að framkvæmdastjórinn hafi lagt sig fram um að „niðurlægja, gera lítið úr, móðga, særa, mismuna og ógna“ honum, að því er fram kemur í bréfinu.

Að lokum fór hann á fund með framkvæmdastjóra og fjármálastjóra vegna eineltisins þar sem sá fyrrnefndi á að hafa spurt hvort hann vildi ekki leita sér að nýrri vinnu þar sem honum liði augljóslega illa í vinnunni.

Starfsmaðurinn fór eftir þennan fund og ræddi við fjármálastjóra þar sem hann tjáði honum að hann væri að hugsa um að segja upp, þar sem hann gæti ekki unnið við þessar aðstæður lengur. Hann skilaði hins vegar ekki inn uppsagnarbréfi heldur fór til læknis sem mat hann óvinnufæran vegna ástandsins. Í bréfinu kemur fram að starfsmaðurinn sé „í miklu áfalli vegna þess langvarandi ástands sem hann hefur mátt þola og mun ekki mæta til vinnu að læknisráði við óbreyttar aðstæður enda er svo komið að vanlíðan á vinnustað lýsir sér í alvarlegum líkamlegum einkennum og hefur læknir rakið þau til langvarandi álags,“ og að læknir hafi beðið hann um að koma sér úr ástandinu nú þegar.

Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis.
Lögmaður starfsmannsins sendi bréfið fyrir hönd hans þann 7. september síðastliðinn. Þar sem engin svör höfðu borist við bréfinu ítrekaði hann með öðru bréfi 26. október að fundin yrði lausn í málinu. Því bréfi var svarað og í svarinu kom fram að rannsókn væri hafin á málinu. Sú rannsókn verður framkvæmd af sálfræðingum og hefst í lok mánaðarins. 

Um síðustu mánaðamót fékk starfsmaðurinn ekki greidd laun þrátt fyrir að vera með læknisvottorð upp á það að hann gæti ekki verið í vinnunni vegna ástandsins. Hann hafði þá fengið sendan starfslokasamning sem hann hefur ekki undirritað þar sem hann telur starfslokin ekki vera á eðlilegum forsendum. 

Hjálmar Árnason vildi ekki tjá sig um mál einstakra starfsmanna þegar eftir því var leitað. Hann sagði málið sorglegt og dapurlegt. „Þetta er fyrst og fremst leiðinlegt mál,“ segir Hjálmar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×