Íslenska stuttmyndin Jón Jónsson vekur athygli erlendis Kristjana Arnarsdóttir skrifar 19. júní 2014 09:30 „
Við gerðum þessa mynd fyrir mjög lítið fjármagn og draumurinn hefur alltaf verið að gefa þeim sem lögðu hjarta og sál í þetta verkefni eitthvað til baka,“ segir Lára Guðrún Jóhönnudóttir, framleiðandi stuttmyndarinnar Jón Jónsson. Myndin var valin til þátttöku á vefkvikmyndahátíðinni Viewster. Lára segir að 568 myndir keppi á hátíðinni en þemað að þessu sinni var flókin ástarsambönd. „Myndin okkar, Jón Jónsson, fjallar um ekkil sem býr einn og hefur aldrei gifst á ný. Hann er vanafastur og heldur í sína föstu rútínu. Hann átti í talsvert flóknu sambandi við látnu eiginkonuna og skyndilega fara undarlegir atburðir að gerast,“ segir Lára, en Jón Jónsson er leikinn af engum öðrum en Erlingi Gíslasyni. Sigurmyndin hlýtur 70.000 þúsund Bandaríkjadali í verðlaun en Jón Jónsson er um þessar mundir í 34. sæti af öllum 568 myndunum.Lára Guðrún, framleiðandi.„Við höfum verið að mjakast upp listann án þess að hafa hvatt nokkurn til að kjósa. Nú ætlum við hins vegar að biðla til fólks um að kjósa myndina svo við komumst ofar en það virðist vera eins og hjörtu Íslendinga slái saman á netinu, það vilja yfirleitt allir styðja við bakið á ungum og upprennandi Íslendingum,“ segir Lára. Kosningu lýkur 24. júní en dómnefnd mun síðan fara yfir efstu tíu myndirnar. „Jón Jónsson er þrusugóð mynd sem fólk á eftir að hafa gaman af. Erlingur er líka farinn að draga sig í hlé í leiklistinni svo þetta er kannski í eitt af síðustu skiptunum sem hægt er að sjá hann njóta sín á skjánum.“ Lára hvetur fólk til þess að fara inn á viewster.com og kjósa myndina en hægt er að horfa á hana án endurgjalds til 24. júní.
Mest lesið Best klæddu stjörnurnar á Met Gala Tíska og hönnun Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Lífið „Ég verð að komast til Japan“ Lífið Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Lífið „Við erum öll byrjendur á einhverjum tímapunkti“ Lífið Martröð að fara á útikamar í svartamyrkrinu í Eistlandi sem barn Lífið Stærstu stjörnur rappsins bera hvor annan þungum sökum Lífið Myndaveisla: Mari og Guðni féllust í faðma á ögurstundu Lífið Baulað á Kim Kardashian þegar Brady var grillaður Lífið Blóm og plöntur sem þola kuldann Lífið Fleiri fréttir Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Myndaveisla: Svana töfraði fram suðræna veislu fyrir UAK Myndaveisla: Mari og Guðni féllust í faðma á ögurstundu Stærstu stjörnur rappsins bera hvor annan þungum sökum Baulað á Kim Kardashian þegar Brady var grillaður Söngskóli Sigurðar Demetz með Oklahoma í Borgarleikhúsinu Fleiri svartsýnir á gott gengi Heru Sumarlegir réttir að hætti Jönu Emilíana Torrini kemur fram í Hörpu Búa til barnaefni á íslensku á Youtube Er hægt að skjóta í gegnum byssukúlu? Blóm og plöntur sem þola kuldann Neyslan var orðinn algjör þrældómur Stjörnulífið: Líf og fjör og ástin blómstar Martröð að fara á útikamar í svartamyrkrinu í Eistlandi sem barn Bítið í beinni „Ég verð að komast til Japan“ „Við erum öll byrjendur á einhverjum tímapunkti“ Sonurinn skírður Gylfi og Alexandra eiga von á barni Bernard Hill er látinn Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Tróð upp í Norræna partýinu Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Bakaríið í beinni Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Sjá meira