Sport

Átti ekki von á þessum yfirburðum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sveinbjörg fór á kostum í Kópavogi um helgina.
Sveinbjörg fór á kostum í Kópavogi um helgina. fréttablaðið/daníel
Ísland eignaðist tvo Norðurlandameistara á NM í fjölþrautum unglinga sem fram fór í Kópavogi um nýliðna helgi. FH-ingurinn Sveinbjörg Zophoníasdóttir vann í sjöþraut, flokki yngri en 23 ára, og hlaut alls 5.723 stig sem er bæting um 244 stig.

Blikinn Ingi Rúnar Kristinsson varð yfirburðameistari í tugþraut í flokki yngri en 23 ára með 7.156 stig, en besti árangur Inga fram til þessa var 6.955 stig. Árangur Inga Rúnars er þriðji besti árangur í tugþraut í flokki 22 ára og yngri frá upphafi.

Aðeins Einar Daði Lárusson og Örn Clausen eiga betri árangur í þessum aldursflokki.

Árangur Sveinbjargar er annar besti árangur í sjöþraut frá upphafi og 155 stigum frá Íslandsmeti Helgu Margrétar Þorsteinsdóttur frá 2009. Með sigri sínum sínum varði hún titil sinn frá þessu móti í fyrra. Þá hlaut hún 5.212 stig

Yfirburðirnir komu á óvart

„Þetta voru talsverðir yfirburðir hjá mér og nokkuð öruggt eftir þrjár til fjórar greinar. Ég átti ekki von á þessum yfirburðum enda átti ein stelpan skráðan betri árangur en ég,“ segir Sveinbjörg sem var eðlilega hæstánægð með þrautina sína.

Hún vann þrjár greinar af sjö og varð önnur í öðrum þremur og bætti sinn árangur í sex af sjö greinum keppninnar.

„Ég átti ekki von á svona góðum árangri svona snemma á tímabilinu hjá mér. Ég er samt búin að æfa rosalega vel og búin að leggja vel inn fyrir þessum árangri. Þetta kom mér ekki þannig séð mikið á óvart en gekk engu að síður vonum framar. Þetta var algjör draumaþraut hjá mér.“

Það var aðeins í hástökki sem hún bætti ekki sinn besta árangur í þraut en það dugði henni samt til sigurs í greininni.

„Ég var ánægðust með grindahlaupið og kúluvarpið hjá mér í þrautinni. Ég var óánægðust með 800 metra hlaupið hjá mér og hugsaði þegar ég kom heim að ég hefði nú alveg getað hlaupið hraðar. Maður getur alltaf fundið eitthvað að þó svo það hafi gengið fáranlega vel hjá mér,“ segir Sveinbjörg og hlær við.

Staðan var reyndar þannig fyrir 800 metra hlaupið að Sveinbjörg hefði nánast getað hlaupið aftur á bak og samt unnið þrautina. Slíkir voru yfirburðirnir hjá henni.

fréttablaðið/daníel
Lyftingarnar breyttu miklu

Þetta var fyrsta mót Sveinbjargar á keppnistímabilinu og því er árangurinn vonum framar eins og hún segir. Hún þakkar þennan árangur mikilli vinnu.

„Ég hef lyft meira núna en áður og er sterkari. Það er aðalbreytingin hjá mér. Ólympísku lyftingarnar komu sterkar inn hjá mér og svo slapp ég alveg við meiðsli sem hefur einnig mikið að segja. Við fórum síðan í æfingaferð til Tenerife þar sem við tókum tuttugu æfingar á tíu dögum. Það er því búið að vinna vel fyrir þessum árangri. Svo hefur reynslan líka sitt að segja. Ég er búin að upplifa góðar og slæmar þrautir og það hlaut að koma að draumaþrautinni. Reynslan skilar sér á endanum,“ segir hin 22 ára gamla Sveinbjörg.

Hugsar sem minnst um metið

Eins og áður segir er Sveinbjörg nú aðeins 155 stigum frá Íslandsmeti Helgu Margrétar í sjöþrautinni.

„Ég reyni að tala sem minnst um það,“ segir Sveinbjörg og hlær. „Ég vil ekki setja pressu á sjálfa mig. Auðvitað horfi ég til þessa mets og veit hvað ég get. Ég er samt ekkert að flýta mér enda aðeins 22 ára. Það kemur þegar það kemur að ég slái þetta met.“

Það er ýmislegt á döfinni hjá Sveinbjörg í sumar og þar á meðal landsliðsverkefni. Stóra mótið hennar er aftur á móti Evrópubikarinn á Madeira sem fer fram eftir mánuð.

„Ég tek því rólega út þessa viku og svo hefst undirbúningurinn fyrir Evrópubikarinn. Ég vil ekki gefa neitt út um nein markmið á því móti. Ég ætla að fara út og markmiðið er fyrst og fremst að halda áfram að bæta minn besta árangur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×