Erlent

Hamas-samtök í kröggum

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Hamas-samtökin eru tilbúin í stríð við Ísrael.
Hamas-samtökin eru tilbúin í stríð við Ísrael. Vísir/AP
Tugir þúsunda stuðningsmanna Hamas-samtakanna komu saman í miðborg Gaza í gær til að sýna styrk sinn. Samtökin eru í fjárkröggum um þessar mundir, þeim verstu síðan þau komust til valda á svæðinu fyrir sjö árum.

Leiðtogar Hamas lögðu í gær mikla áherslu á að samtökin legðust alfarið gegn friði í Mið-Austurlöndum og séu tilbúin í stríð gegn Ísrael hvenær sem er.

„Andspyrnuhreyfingin er sterkari en þið haldið,“ sagði forsætisráðherra Hamas á samkomunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×