Lífið

Umbreyta hótelherbergjum í Reykjavík

Nóg að gera.
Nóg að gera. Vísir/Andri Marínó
Átta útskrifaðir hönnuðir úr Listaháskóla Íslands keppast um að umbreyta hótelherbergjum á Fosshótel Lind í Reykjavík á sem frumlegastan máta.

Fjögur tveggja manna lið vinna að endurhönnun á fjórum herbergjum, en meðal keppenda er myndlistarmaðurinn og vöruhönnuðurinn Harpa Björnsdóttir.

„Við fáum þema, sem er Ísland, en er samt ótrúlega vítt. Þaðan fáum við svo frjálsar hendur að mestu leyti, nema að hótelið setur þær reglur að þetta fúnkeri enn sem þægilegt hótelherbergi, það þarf að vera hirsla fyrir ferðatöskur, það þarf að vera klósettaðstaða, og svo framvegis,“ segir Harpa, og hlær, en liðsfélagi hennar er Ylfa Geirsdóttir.

„Ég get ekki talað fyrir hin liðin, en ég held að ég geti verið nokkuð örugg með það að útkoman mun verða frumleg og koma fólki á óvart,“ heldur hún áfram, og heldur að lítið verði um vísanir í jökla eða Bláa lónið.

„Þetta er svo frumlegt fólk!“

Dómnefnd mun dæma hönnun keppenda, en hana skipa Björn Skaptason arkitekt, Davíð T. Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótela, og Greipur Gíslason, verkefnastjóri HönnunarMars. Almenningi mun einnig gefast kostur á að velja sitt uppáhalds verkefni á netinu og á staðnum.

Fullbúin herbergi verða til sýnis á HönnunarMars helgina 28.-30. mars.

„Við Ylfa erum í liði 3 og erum með alls konar hugmyndir um hvað við ætlum að gera við herbergið. En við viljum ekki segja mikið þar sem það á að koma á óvart. Það sem við erum að fást við í augnablikinu er að pússa, sparsla, mála og hafa gaman,“ segir Harpa.

Fjöldi fyrirtækja gefur keppendum vinninga og má þar nefna síma, og markaðsráðgjöf, gistingu og gjafabréf til að fara út að borða svo eitthvað sé nefnt.

Hvert herbergi fær svo styrki í formi húsgagna, textíls, málningar og efna, ásamt fimmtíu þúsund króna sjóði frá Íslandshótelum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×