Bílar

Snarbiluð skíðaferð niður gil

Finnur Thorlacius skrifar
Það finnast margir ofurhugarnir með skíði á löppunum. Sumir þeirra storka örlögunum fyrir framan myndavélarnar. Vart er hægt að ganga lengra en hér sést þar sem afar flínkur skíðamaður skíðar niður hnífblaðs-þröngt gil sem nánast lokast neðst.

Skíðamaðurinn fífldjarfi heitir Cody Townsend og þótt ótrúlegt megi virðast leikur hann sér að því að troðast niður gilið, en þar er nánast ekki pláss til að sviga og hægja með því ferðina, enda er hraði hans geigvænlegur neðst í gilinu. Sjón er sögu ríkari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×