Lífið samstarf

Fullkomið krem fyrir mig

Margrét Anna Einarsdóttir lögmaður notar vörur frá OLAY.
Margrét Anna Einarsdóttir lögmaður notar vörur frá OLAY.
„Ég hef verið yfir mig hrifin af kremunum frá OLAY frá því ég kynnist þeim fyrst fyrir um fjórum árum. Áður hafði ég átt í vanda með að finna krem sem hentuðu minni húð, án þess að fá þurrkabletti. Ég hef verið mjög ánægð með TOTAL EFFECT kremlínuna frá OLAY, sem henta mér fullkomnlega,” segir Margrét Anna Einarsdóttir lögmaður.

Margrét Anna hefur undanfarið verið að prófa nýja kremið frá OLAY, Regenerist LUMINOUS, sem er sérstaklega ætlað 25 ára og eldri. Kremið á að draga fram húðljóma og jafna húðlit.

„Þetta er 24 tíma krem og því nota ég það bæði á morgnana og eftir andlitshreinsun á kvöldin,” segir Margrét Anna sem finnst kremið algjör orku- og rakabomba fyrir húðina.

„Ég er rosalega ánægð með þetta nýja krem. Mér fannst freistandi að prófa það, þar sem það á að draga fram húðljóma, ekki veitir af eftir sólarlaust sumar og stanslausa inniveru í vinnu.“

Olay Regenerist Luminous
Margrét Anna notar fleiri vörur frá OLAY. Til dæmis OLAY Regenerist hreinsiburstann.

„Ég nota hann reglulega og finnst hann í einu orði sagt frábær. Með því að nota hann veit ég að virku efnin í kremunum ná að komast betur ofan í húðina og þannig færst betri virkni,“ lýsir hún.

„Ég vel OLAY krem vegna þess að ég veit að OLAY er stærsti andlitskrema-framleiðandi í heiminum í dag og framleiða hágæða krem á mjög sanngjörnu verði. Fullkomið val fyrir mig!“ segir Margrét Anna yfir sig ánægð.



Olay Regenerist Luminous

  • Dregur úr dökkum blettum og jafnarhúðlit
  • Frískar og vekur upp húðina
  • Ætlað 25 ára og eldri.
  • Virkar í 24 tíma.
  • Gefur einstaklega mikinn raka og silkimjúka áferð
  • Gefur heilbrigðara og unglegra útlit
  • Gefur húðinni óaðfinnanlegan húðljóma
  • Einstaklega gott undir farða, gefur góðan grunn





Fleiri fréttir

Sjá meira


×