Innlent

Alþjóðlegu blaðamannasamtökin fordæma kröfu Þóreyjar

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Jóhann Páll, Þórey og Jón Bjarki eru til umfjöllunar hjá Alþjóðlegu blaðamannasamtökunum.
Jóhann Páll, Þórey og Jón Bjarki eru til umfjöllunar hjá Alþjóðlegu blaðamannasamtökunum. Vísir
Alþjóðlegu blaðamannasamtökin fordæma kröfu Þóreyjar Vilhjálmsdóttur að fara fram á fangelsisdóm yfir blaðamönnum DV, þeim Jóni Bjarka Magnússyni og Jóhanni Páli Jóhannssyni.

Sérstakur ráðgjafi samtakanna í ritstjórnarlegu frelsi, Scott Griffen, segir að samtökin séu slegin yfir þessari kröfu Þóreyjar. „Að opinber starfsmaður sækist eftir því að blaðamenn verði fangelsaðir – eða refsingu af einhverju tagi – fyrir það sem virðist vera heiðarleg mistök gefur til kynna að hlutverk fjölmiðla, sem varðhundur almennings, er ekki virt,“ bætir hann við.

Alþjóðlegu blaðamannasamtökin hvetja íslensk stjórnvöld til þess að breyta meiðyrða löggjöfinni hér á landi og gera hana líkari því sem gerist annarsstaðar. Griffen segir að blaðamenn eigi að njóta verndar frá lögunum, geri þeir heiðarleg mistök.

Í stefnu sem Hulda Árnadóttir, lögmaður Þóreyjar, lagði fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðasta mánuði kemur fram að farið sé fram á Jóhann Páll og Jón Bjarki verði dæmdir til „ýtrustu refsingar fyrir brot á 234. og 235. gr. almennra hegingarlaga.“ Hámarksrefsing fyrir brot á þessum greinum er árs fangelsi.

Stefnan er tilkomin vegna fréttaskrifa þeirra tveggja um Þóreyju, sem tengjast lekamálinu svokallaða.

Í DV var því haldið fram að Þórey væri hinn svokallaði „starfsmaður B“, sem vísað er til í úrskurði Hérðasdóms Reykjavíkur, en kemur fram í úrskurðinum að lögreglan hafi rökstuddan grun um að þessi „starfsmaður B“ sé sá sem lak minnisskjali um Tony Omos, hælisleitanda. 



Sama dag og greinin birtist sagði Reynir Traustason, þáverandi ritstjóri DV þetta við Vísi:

„Við gerðum klárlega mistök. Þórey er með stöðu grunaðs manns. Mistök okkar eru þau að rugla henni saman við starfsmann B – starfsmaður B er Gísli Freyr Valdórsson, hinn aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Við biðjum Þórey afdráttarlaust afsökunar á að hafa bendlað hana við þennan gjörning Gísla.“


Tengdar fréttir

Krefst þess að blaðamenn DV verði fangelsaðir

Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, fer fram á að tveir blaðamenn DV verði dæmdir til fangelsisvistar vegna fréttarskrifa um hana í júní, í tengslum við lekamálið svokallaða.

Þórey sögð með réttarstöðu grunaðs manns

Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, er sögð vera sú sem lak umdeildum minnisblaði um hælisleitandann Tony Omos.

Þórey í mál við DV

Alvarleg ósannindi í umfjöllun DV varðandi hennar þátt í leka minnisblaðsins um hælisleitandann Tony Omos.

Formaður BÍ: Sorglegt að grípa til þessara ráða

Formaður Blaðamannafélags Íslands furðar sig á stefnu Þóreyjar Vilhjálmsdóttir. Hann segir hana fráleita og að sorglegt sé að hún hafi ákveðið að grípa til þessara ráða.

Þórey stefnir blaðamönnum DV

Aðstoðarmaður innanríkisráðherra hefur falið lögmanni að birta Jóni Bjarka Magnússyni og Jóhanni Páli Jóhannssyni stefnu vegna ærumeiðandi ummæla og grófra aðdróttana í hennar garð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×