Innlent

Ósáttur við frekjuna í hyskinu á landsbyggðinni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
"Og það væri landhreinsun fyrir okkur við Faxaflóann að losna við ríkisstjórnina og ráðuneytin og það. Good riddance!“
"Og það væri landhreinsun fyrir okkur við Faxaflóann að losna við ríkisstjórnina og ráðuneytin og það. Good riddance!“ Vísir/GVA
Einar Kárason, rithöfundur og Reykvíkingur, er allt annað en sáttur við umræðuna um Reykjavíkurflugvöll. Hann hafi búið í nágrenni við flugvöllinn í áratugi og hafi alls ekki vondar tilfinningar í hans garð.

„En frekjan í hyskinu af landsbyggðinni sem heimtar að fá að stjórna nærumhverfi okkar sem hér búum er svo yfirgengileg að mér finnst að við ættum segja þeim að gjöra svo vel að gera Þórshöfn á Langanesi að höfuðborg (eða hvaða þorp sem þeir kjósa),“ segir Einar í opinni færslu á Fésbókinni.

Fimmtán þingmenn Framsóknarflokksins lögðu á fimmtudag fram frumvarp á Alþingi um skipulags- og mannvirkjamál á Reykjavíkurflugvelli. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að skipulagsvald yfir flugvellinum verði flutt frá borginni og til Alþingis.

„Þótt Reykjavíkurflugvöllur sé staðsettur í miðborg Reykjavíkur er hann eftir sem áður flugvöllur þjóðarinnar allrar," segir í greinargerðinni með frumvarpinu.. „Til þess stendur pólitískur vilji að Alþingi hafi áhrif á skipulag og mannvirkjagerð á Reykjavíkurflugvelli.”

Ráðherrar Framsóknarflokksins eru ekki á meðal flutningsmanna frumvarpsins. Þá telur oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, Halldór Halldórsson, litlar líkur á að meirihluti sé fyrir frumvarpinu á Alþingi. Hann sé þess utan ekki sammála frumvarpinu þó hann telji að hann eigi að vera um kyrrt í borginni.

Einar minnir á að á Þórshöfn sé að finna fínan flugvöll, nokkuð nýjan sem sé að flestu leyti betur búinn en Reykjavíkurflugvöll að því hann telji. Auk þess sé örstutt í enn fínni flugvöll á Húsavík sem gæti nýst sem varaflugvöllur. Flugvellirnir séu að vísu „aldrei notaðir.“

„Og það væri landhreinsun fyrir okkur við Faxaflóann að losna við ríkisstjórnina og ráðuneytin og það. Good riddance!“

Leiðrétt klukkan 19:57

Í fyrstu útgáfu fréttarinnar stóð að ráðherra Framsóknar væru ekki stuðningsmenn frumvarpsins. Hið rétta er að þeir eru ekki á meðal flutningsmanna.


Tengdar fréttir

Vildu virða þverpólitíska sátt um Reykjavíkurflugvöll

Fulltrúar sjálfstæðismanna í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur greiddu á fundi ráðsins í morgun atkvæði gegn tillögu meirihluta þess um að neyðarbrautin á Reykjavíkurflugvelli víki fyrir íbúðabyggð á hinu fyrirhugaða Hlíðarendasvæði við Vatnsmýri.

Dagur segir fundarboðið stórfurðulegt

Borgarstjóri vísar því á bug að hugleysi og undanbrögð hafi ráðið því að hann afboðaði sig á þingnefndafund um flugvöllinn í Vatnsmýrinni í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×