Verða í skátabúningum og með regnbogalitaða klúta Atli Ísleifsson skrifar 6. ágúst 2014 18:49 Skátar eru ef til vill þekktari fyrir að marsera en fara í dansskóna á laugardaginn. Vísir/Valgarður „
Skátar eru ef til vill þekktir fyrir það að marsera en við ætlum að sýna okkar glaðara og litríkara sjálf og dansa svolítið,“ segir Inga Auðbjörg Kristjánsdóttir skáti í samtali við Vísi, en íslenskir skátar ætla að taka þátt í Gleðigöngunni í Reykjavík á laugardag. Inga Auðbjörg segir skáta með þessu ætla að sýna mannréttindum virðingu sína. „Við ætlum að vera með vagn eins og margir aðrir en við viljum sýna fram á að þetta sé opin, viðsýn og fjölbreytt hreyfing,“ en skátarnir munu klæðast skátabúningum og regnbogalitaða klúta. Inga Auðbjörg segir hugmyndina hafa verið setta fram í umræðuhópi skáta á vefnum og strax verið vel tekið. Segir hún framtakið mjög í anda samþykkta Skátaþings, en þar var ályktað mjög ákveðið að skátar vinni markvisst gegn hvers kyns mismunun. „Fjölmiðlar hafa kannski ekki hjálpað okkur að sýna það að þetta sé opin og víðsýn hreyfing, en hreyfingin í Bandaríkjunum og víðar getur verið svolítið forpokuð. Til dæmis eru samkynhneigðir fullorðnir karlmenn ekki leyfðir í hreyfingunni í Bandaríkjunum. Það eru svona hlutir sem lögð er áhersla á í fjölmiðlum á Íslandi í dag,“ segir Inga Auðbjörg. Segir hún hreyfinguna vera mjög mannréttindasinnaða. „Nú viljum við fá að vera með í gleðinni og taka almennilega þátt.“
Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Skotárás við heimili Drake Erlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent Fleiri fréttir Borgin gerir úttekt á samning um fækkun bensínstöðva Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Sjá meira