Erlent

Bjóða fimm milljón dollara í verðlaunafé fyrir upplýsingar um hvarf vélarinnar

visir/ap
Ættingjar þeirra 239 einstaklinga sem fórust með malasísku farþegavélinni fyrir þremur mánuðum síðan hafa nú stofnað sjóð og er ætlunin að verja fimm milljón dollara í verðlaunafé, handa hverjum þeim sem getur gefið upplýsingar um orsakir þess að vélin hvarf af ratsjám í mars síðastliðnum.

Fjölskyldur þeirra sem saknað er eru verulega ósáttar við framgöngu malasískra yfirvalda og annarra rannsakenda flugslyssins, og segjast ættingjar þess fullvissir að upplýsingum sé haldið vísvitandi frá þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×