Matur

Gott í grunninn: Búðu til þitt eigið majónes

Í boði náttúrunnar skrifar
Að búa til mat frá grunni er bæði gefandi og skemmtilegt og við hjá Í boði náttúrunnar viljum stuðla að frekari þekkingu á einfaldri matargerð sem við getum öll átt við heima hjá okkur en fæstum dettur í hug að reyna. Með því að gera hlutina frá grunni vitum við nákvæmlega hvað við setjum ofan í okkur og sleppum við ýmiss konar aukaefni eins og bragð- og litarefni, svo að ekki sé minnst á rotvarnarefnin.

Við völdum majónes í þetta skiptið þar sem við fjöllum einnig um hænur og fersk egg í grein í nýjasta tölublaðinu. Majónes er frábær uppistaða í margar kaldar sósur, á brauðið og í okkar ástkæru kokteilsósu. Og ef það er afgangur þá má setja restina í hárið eins og um næringu væri að ræða og á víst að gera þurrt hár mjúkt og glansandi!

Uppistaðan í majónesi er eggjarauður og olía og er það majónes í sínu einfaldasta formi. En gott er að bæta nokkrum bragðefnum við til að gera það enn bragðbetra.

2 eggjarauður 

1 bolli bragðlítil olía 

1 msk. sítrónusafi eða edik 

1 tsk. Dijon-sinnep


salt og pipar

Setjið eggjarauðurnar í rúnnaða skál sem er komið vel fyrir þannig að hún sé stöðug á borðinu og hrærið þær saman með pískara ásamt sinnepinu.

Einnig er hægt að búa til majónesið í matvinnsluvél. Því næst er olíunni bætt út í og það er afar mikilvægt að gera það mjög hægt svo að majónesið skilji sig ekki.

Einnig þarf að passa að hræra stöðugt á meðan olíunni er bætt út í. Þegar blandan er orðin vel þykk er sítónusafa, ediki eða blöndu af báðu bætt út í ásamt örlitlu af salti og pipar. Setjið í krukku og athugið að það er óhætt að geyma majónesið í allt að viku í ísskáp.

Uppskriftina í heild sinni má sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×