Tónlist

Lordi er aðdáandi Dimmu

Finnska rokksveitin Lordi líkar við Dimmu.
Finnska rokksveitin Lordi líkar við Dimmu. Vísir/Getty
Finnska hljómsveitin Lordi hefur valið lista sem inniheldur sín tíu uppáhaldslög eftir listamenn frá Norðurlöndunum. Í raun er það Mr. Lordi, sem er söngvari sveitarinnar sem velur listann og valdi hann lagið Skuggakvæði eftir íslensku hljómsveitina Dimmu í fyrsta sæti listans.

Um er að ræða Norrænan spilunarlista, eða Nordic Playlist, þar sem þekktur tónlistarmaður frá Norðurlöndunum velur sín tíu eftirlætis lög. Nýr tónlistarmaður velur listann í hverri í viku.

Hljómsveitin Lordi er líklega best þekkt fyrir að hafa sigrað Eurovision-keppnina árið 2006. Þá er hljómsveitin einnig sérstaklega þekkt fyrir sinn einstaka stíl í klæðaburði og einstaka tilburði á tónleikum.

Hægt er að nálgast allan listann og enn frekari upplýsingar um Norræna spilunarlistann, eða Nordic Playlist hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×