Lífið

Foreldrarnir fyrirmyndir

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Þriðja undanúrslitakvöld Ísland Got Talent verður sýnt í beinni útsendingu á Stöð 2 á sunnudagskvöldið.

Í þættinum berjast keppendur um pláss í úrslitaþættinum. Alexander er meðal keppenda og við kynnumst honum aðeins betur.

Fullt nafn: Alexander Smári Kristjánsson Edelstein

Aldur: 15 ára

Símanúmer til að kjósa hann í Ísland Got Talent: 9009503

Af hverju á fólk að kjósa þig?

Það er erfitt fyrir mig að svara því, ég held bara að fólk verði að hlusta á flutning minn og fylgja eigin sannfæringu. 

Hver er draumurinn?

Að starfa sem einleikari á píanó í framtíðinni.

Hver er fyrirmynd þín í lífinu?

Foreldrar mínir og margir píanóleikarar sem ég lít mikið upp til, það er erfitt að nefna einhvern einn sérstakan. 

Hvaða minning stendur upp úr úr Ísland Got Talent?

Þegar ég komst áfram í áheyrnarprufunum.

Jón Jónsson eða Þórunn Antonía?

Jón Jónsson.


Tengdar fréttir

Hvern ætlar þú að kjósa á sunnudaginn?

Næsta sunnudagskvöld fá áhorfendur Stöðvar 2 að sjá næstu átta atriði sem bítast um að verða á meðal þeirra sem keppa um tíu milljóna verðlaunafé í hæfileikakeppninni Ísland got Talent.

Þau keppa næsta sunnudag

Hér má sjá keppendurna sem bítast um að verða á meðal þeirra sem keppa um tíu milljónirnar í hæfileikakeppninni Ísland got Talent.

Keppendur skelltu sér í bíó

Mikil stemning var í hópnum og allir ánægðir með myndina One Chance enda ekki annað hægt því myndin er frábær.

Píanó- og danssnillingar komust í úrslit

Dansparið Margrét Hörn Jóhannsdóttir og Höskuldur Þór Jónsson og píanó- og söngkonan Laufey Hlín Jónsdóttir tryggðu sér í kvöld möguleikann á tíu milljónum króna í Ísland got Talent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×