Lífið

Hvað ætlar þú að sjá á HönnunarMars?

Ellý Ármanns skrifar
HönnunarMars er hafinn í sjötta sinn, og stendur yfir dagana 27. til 30. mars, þar má sjá þverskurð þess sem er að gerast í íslenskum hönnunarheimi. Við spurðum nokkrar konur hvað þær ætla að sjá og upplifa á HönnunarMars.

Edda Hermannsdóttir dagskrárgerðarkona á Miklagarði

„Það eru margir hönnuðir á RFF sem er gaman að fylgjast með og ekki oft sem tækifæri gefst til að fylgjast með glæsilegri íslenskri hönnun á tískupöllunum. Mig langar að kíkja á Frosið landslag hjá Ígló sem er í miklu uppáhaldi og það er líka spennandi að kíkja á Tulipop teiknismiðjuna með krakkana. Ég ætla heldur ekki að missa af Karon sem er með flottu Triton ljósin i Epal en það er vinkona mín að norðan sem hannaði þau.“

Nína Björk Gunnarsdóttir ljósmyndari og stílisti

„Ég er spennt að sjá ELLU, REY og JÖR. Svo verður gaman að kíkja í eftirpartíið hjá ELLU og hitta alla trendsettara landsins.“

Sóley Kristjánsdóttir vörumerkjastjóri Grand Marnier

„Ég ætla að sjá Orra Finn og Akkerisgjörninginn í bænum. Svo í kvöld fer ég á Yuliu með Hildi Yeoman en hún verður með Grand Marnier kokteil á undan. Svo er ég að sýna á RFF fyrir Hörpu Einars/Zisku - það verður eitthvað.  Svo ætla ég að horfa á hinar sýningarnar. Ég ætla að reyna að komast á arkitektasýningar með manninum mínum í Hörpu og Ráðhúsinu inn á milli. Á laugardagskvöldinu verð ég með ELLU í rosalegu Grand Finale partý fyrir RFF en það er í samstarfi með Grand Marnier. Nóg að gera þessa helgi.“

Soffía Steingrímsdóttir  framkvæmdastjóri Kvennablaðsins

„Í dag er ég að undirbúa partí sem við á vinnustaðnum S33 erum með í tilefni HönnunarMars. Þar munum við sem erum þar sýna hvað við erum að gera. Á morgun ætla ég að kíkja á Shop Show í Hafnarborg, Kríu skartgripahönnun, Verum Fabúlos sem er samsýning og á Pop-up verslun íslenskra hönnuða. Þetta er svona það helsta.“

Ása Ottesen markaðsfulltrúi Te og Kaffi

„Ég ætla að sjá Fegursta Orðið í Þjóðmenningarhúsinu, PopUp verzlun íslenskra hönnuða á Loft Hostel, Ótal blæbrigði norrænnar hönnunar og svo fer ég að sjálfsögðu á RFF.„

Elsa Yeoman forseti borgarstjórnar og frambjóðandi í Bjartri framtíð í Reykjavík

„Hápunktur Hönnunar Mars er í dag föstudag þar sem Yeoman fjölskyldan kemur saman og eldar dýrindis Jersey style kveldmat í tilefni af syningu frænku minnar Hildar Yeoman , Yulia. Amma Júlía var hress amerísk/ungversk skessa sem kunni að skemmta sér drakk mikið viskí og spilaði póker.  Til þess að hlaupa af sér hornin stakk hún  af með Hells Angels og krúsaði um Bandaríkin á mótorhjóli. Svo ætla ég líka að kíkja á sýninguna hennar Steinunnar - því má enginn missa af.“

Sjá dagskrána hér.


Tengdar fréttir

Færeysk hönnun í Kraumi

Glerlist, skartgripir, leðurtöskur og púðar eru meðal muna á sýningu sem færeyskir hönnuðir opna í Kraumi, Aðalstræti 10, í Reykjavík í dag.

InukDesign á HönnunarMars

LissStender er eini starfandi vöruhönnuðurinn á Grænlandi. Hún tekur þátt í HönnunarMars og sýnir í Epal í Hörpu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×