Íslenski boltinn

Lengjubikarinn: Öruggt hjá ÍA gegn Skástrikinu

Garðar skoraði fyrir ÍA í dag.
Garðar skoraði fyrir ÍA í dag.
Lengjubikarkeppni KSÍ hófst í dag með ÍA og BÍ/Bolungarvíkur í Akraneshöllinni. Heimamenn unnu þar öruggan sigur, 3-0.

Það voru þeir Andri Adolphsson, Garðar Gunnlaugsson og Sindri Snæfells Kristinsson sem skoruðu mörk ÍA í leiknum. Mark Garðars kom af vítapunktinum.

Þetta var leikur í riðli 1 í A-deild keppninnar. Skagamenn byrja tímabilið því undir stjórn síns nýja þjálfara, Gunnlaugs Jónssonar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×