Íslenski boltinn

Lengjubikarinn: Fram skellti KR í markaleik

Úr leik liðanna i Reykjavíkurmótinu.
Úr leik liðanna i Reykjavíkurmótinu. vísir/pjetur
Fjórir leikir fóru fram í Lengjubikar karla í dag. Liðin sem spiluðu í úrslitum Reykjavíkurmótsins á dögunum - KR og Fram - mættust á nýjan leik.

Aftur gerðu fermingardrengirnir hans Bjarna Guðjónssonar hjá Fram sér lítið fyrir og skelltu KR-ingum.

FH-ingar koma ferskir heim frá Portúgal en þeir unnu sannfærandi sigur á KA.

Úrslit:

KR-Fram  3-4

Gary Martin, Almarr Ormarsson, Aron Bjarki Jósepsson - Arnþór Ari Atlason, Haukur Baldvinsson, Aron Bjarki Jósepsson, sjm.

FH-KA  3-0

Albert Brynjar Ingason, Ingimundur Níels Óskarsson, Emil Pálsson.

Valur-ÍBV  0-1

- Bjarni Gunnarsson.

Víkingur-Stjarnan  2-2

Róbert Rúnar Jack, Ívar Örn Jónsson - Veigar Páll Gunnarsson, Heiðar Ægisson.

Rautt spjald: Michael Præst, Stjarnan.

Upplýsingar um markaskorara: urslit.net.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×