Erlent

Yfirmaður úkraínska hersins rekinn

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
VÍSIR/getty
Forseti Úkraínu hefur sagt upp leiðtoga úkraínska hersins, Col Gen Volodymyr Zamana. Flotaforingi sjóhers Úkraínu, Júrí Iliin tekur við starfinu.

Uppsögnin kemur í kjölfar gríðarlegra óeirða sem geisað hafa í landinu síðastliðna daga en að minnsta kosti tuttugu og sex hafa fallið í átökunum og þúsundir slasast.

Mótmælin í landinu hafa staðið í þrjá mánuði en átök blossuðu skyndilega upp í gær þegar stjórnarandstöðumenn reyndu að koma í gegn frumvarpi á þinginu sem dregið hefði úr völdum forsetans Viktors Janúkóvitsj.

Umræðan kom upp á Alþingi í dag og var utanríkisráðherra var hvattur til að skoða stöðuna.

Evrópusambandið íhugar aðgerðir gegn yfirvöldum í Úkraínu og hefur forseti Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Jose Manuel Barroso, sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að sambandið styðji við bakið á Úkraínumönnum á leið sinni að endurbótum, lýðræði og frið. 

Sjónvarpað er frá óeirðunum og hægt er að fylgjast með þeim hér. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×