Handbolti

Aron K.: Lazarov er einn besti leikmaður heims

Henry Birgir Gunnarsson í Herning skrifar
Landsliðsþjálfarinn Aron Kristjánsson þarf að finna leiðir í dag til þess að stöðva stórskyttuna Kiril Lazarov hjá Makedóníu.

Sá er gríðarlega öflugur og leikur með stórliði Barcelona.

"Hann er einn besti leikmaður heims. Það eru fleiri góðir menn í þessu liði eins og miðjumaðurinn og línumaðurinn. Markvörðurinn er einnig mjög góður," segir Aron.

Hann segir nauðsynlegt að keyra upp hraðann í leiknum og helst reyna að skilja Makedónana eftir sem allra fyrst.

"Við megum ekki leyfa þeim að hanga inn í leiknum því þá fá þeir blóð á tennurnar. Þá verða þeir stórhættulegir."

Viðtalið við Aron í heild sinni má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×