Handbolti

"Íslendingar elska að vinna Dani“

Arnar Björnsson skrifar
Jóhann Ingi Gunnarsson þjálfaði íslenska handboltalandsliðið sem sigraði Dani í Randers 1980 með 18 mörkum gegn 15.  Þetta var fyrsti sigur Íslendinga á Dönum í Danmörku.

Guðjón Guðmundsson ræddi við Jóhann Inga eftir að Spánverjar höfðu tryggt sér sæti í undanúrslitum og í leiðinni gert vonir Íslendinga um að komast þangað að engu.  Jóhann Ingi segir að Íslendingar elski að vinna Dani.  Hann hefur hrifist af íslenska liðinu í keppninni og segir að ef honum hefði verið boðið 5. sætið áður en mótið hófst hefði hann tekið því. 

Hann segir danska liðið sterkara, þar sé valinn maður í hverju rúmi.  „0kkar strákar hafa komið á óvart, og því ekki að vinna Dani í kvöld?“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×