Handbolti

Guðjón Valur: Getum verið stoltir af þessum árangri

Henry Birgir Gunnarsson í Herning skrifar
Guðjón Valur skorar hér eitt tíu marka sinna í kvöld.
Guðjón Valur skorar hér eitt tíu marka sinna í kvöld. vísir/daníel
"Þeir voru að hvíla lykilmenn hjá sér og við vorum líka að rúlla mikið. Við lentum bara í vandræðum og á vegg í síðari hálfleik," sagði landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson eftir tapið gegn Dönum í Boxen í kvöld.

"Við réðum illa við þá og komumst ekkert áleiðis gegn þeim í síðari hálfleik. Það er kannski eðlilegt í ljósi þess að þessi leikur var ekki upp á neitt. Það hefði reyndar virkað líka í hina áttina. Við fáum fullt úr þessum leik. Strákar að spila í fyrsta skipti í svona aðstæðum. Við græðum bara á því.

"Auðvitað er er ömurlegt að horfa upp á töfluna og sjá að við erum að tapa mjög illa. Við erum samt sem áður að spila heilt yfir mjög fínt mót."

Undirbúningur liðsins gekk brösuglega. Leikmenn meiddir og aðrir hafa verið meiddir á mótinu. Miðað við það sem á undan er gengið er ekki hægt að kvarta yfir frammistöðu liðsins. Það mun spila um fimmta sæti mótsins á föstudag.

"Ég held að það sé engin spurning að við getum verið stoltur af þessum árangri. Sjáið hvaða lið eru fyrir aftan okkur. Aðdragandi mótsins var mjög erfiður. Ég held að við höfum á stórum kafla mótsins sýnt góða spilamennsku og verið nokkuð nálægt því sem þetta lið getur.

"Við erum að fá menn inn sem þurfa að stíga upp. Þetta eru hörkustrákar sem lofa góðu. Það er líka eðlilegt að það komi aðeins meiri sveiflur með þeim en okkur hefur tekist að halda þeim vel í skefjum. Í dag var þetta samt kannski óþarflega mikill skellur. Það er samt engin ástæða til að vera með læti yfir því enda breytir það engu."


Tengdar fréttir

Rúnar: Leiðinlegt að geta ekki sýnt betri leik

Leikurinn í kvöld reyndist hinum ungu og öflugu leikmönnum Íslands erfiður. Rúnar Kárason var einn þeirra sem náði sér ekki á strik í kvöld en það á reyndar við um flesta leikmenn liðsins.

Allt var Dönum í hag | Myndir

Ísland tapaði fyrir Danmörku í lokaleik milliriðlakeppninnar á EM í handbolta, 32-23, þar sem heimamenn í Herning fóru á kostum fyrir troðfullri höll.

Aron: Þeir refsuðu okkur

"Ég myndi ekki segja að þetta væri munurinn á liðunum en í dag lendum við í því að gera okkur seka um að klúðra mörgum færum í fyrri hálfleik," sagði Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari svekktur eftir tapið gegn Dönum.

Sverre: Það þarf enginn að skammast sín

"Þeir spiluðu mjög vel og það kom engum á óvart. Við vissum vel við hvaða lið við vorum að fara að spila. Það var því leiðinlegt að ná ekki að stöðva þá betur," sagði varnartröllið Sverre Andreas Jakobsson eftir tapið gegn Danmörku í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×