Lífið

Uppskrift að hollu snarli

Ellý Ármanns skrifar
Myndir/Gudbjartur Ísak Ásgeirsson og Rósa
„Nei, ég strengdi ekki nein heit nú frekar en áður um áramót önnur en þau að horfa björtum augum fram á við og gera mitt besta í því sem ég tekst á hendur,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir matgæðingur með meiru spurð út í áramótaheitin þegar hún gefur okkur æðislega uppskrift að hollu nasli.

Þegar talið berst að hreyfingu segir Rósa: „Það vill nú svo til að nú ákvað ég að byrja árið svolítið hressilega í þeim efnum og var að byrja á námskeiði hjá Siggu í Hress. Það er tíu daga „stutt og stíft“ þar sem tekið er duglega á því og markmiðið að koma fólki vel í gang og það er góð tilfinning í upphafi nýs árs. Þetta eru frábær námskeið sem auka manni orku, styrk og vellíðan. Svo er að sjá hvað tekur við í þessum efnum. Ég heimsæki líkamsræktarstöðvar í skorpum en reyni þó að hreyfa mig alltaf eitthvað, til dæmis með göngutúrum og hjóla mikið þegar veður leyfir.  Síðan stefni ég nú alltaf á að fara á fullt í golfið. Það kemur að því.“

„Ég huga mjög vel að því að borða og bjóða upp á hollan og næringarríkan mat. Sjálf elda ég úr sem ferskustu hráefni hverju sinni og vil vita hvað er í fæðunni sem ég neyti og gef fjölskyldunni. Það er sífelld áskorun að búa til gómsæta og heilsusamlega rétti sem fjölskyldunni allri líkar. En auðvitað fellur maður í ýmsar aðrar freistingar, kannski minna hollar. Það er bara í góðu lagi en reyni að miða við að um 80% af mataræðinu sé heilnæm og holl fæða – því aðalatriði er að fá góða undirstöðu og leyfa sér að borða ýmislegt annað sem freistar hverju sinni. Í mínum huga er mikilvægt að njóta matarins með góðri samvisku.“

Áttu holla uppskrift að hollum rétt fyrir lesendur Lífsins? 

„Ég er alltaf með hnetur, fræ og jafnvel þurrkaða ávexti í skál sem gott er að narta í þegar hungurtilfinningin gerir vart við sig. Afar hollt og seðjandi snarl. Oftast rista ég þetta og krydda á fjölbreyttan máta og er alltaf að prófa nýjar leiðir í þeim efnum. Mér finnst því alveg tilvalið að gefa uppskrift að slíku Hollustusnarli.“

Ristaðar hnetur og fræ

3 dl hnetur og fræ að eigin vali, t.d. kasjú,- og pistasíuhnetur, sólblóma- og graskersfræ

1 tsk. sjávarsalt

1 tsk. túrmerik

½ tsk. paprikuduft

½ tsk. chillípipar

2 tsk. hlyn- eða agavesíróp

1 eggjahvíta Hitið ofninn í 150 gráður.

Aðferð: Blandið öllu saman og dreifið á bökunarplötu sem þakin hefur verið bökunarpappír.

Bakið í um 20 mínútur. Látið kólna og njótið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×