Handbolti

Svona fór síðast gegn Ungverjum | Myndband

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Skjáskot
Íslenska karlalandsliðið í handbolta hyggur á hefndir gegn Ungverjum á EM í Danmörku í dag. Strákarnir muna vel eftir tapinu dramatíska sem gerði út um vonir um verðlaun á Ólympíuleikunum í London sumarið 2012.

Íslenska liðið var í banastuði í London. Með Ólaf Stefánsson í broddi fylkingar fór liðið á kostum og þótti afar líklegt til afreka gegn sterku liði Ungverja í átta liða úrslitum.

Ungverjar höfðu frumkvæðið í fyrri hálfleik. Þeir náðu fljótlega fjögurra marka forskoti og leiddu í hálfleik 16-12. Okkar menn sneru við blaðinu í síðari hálfleik og komust yfir í 27-26 með marki Guðjóns Vals Sigurðssonar þegar tvær mínútur lifðu leiks.

Allt virðist vera að falla með Íslendingum þegar Ólafur Stefánsson sótti vítakast þegar ellefu sekúndur voru eftir af leiknum. Snorri Steinn Guðjónsson kom af bekknum til að taka vítið en markvörður Ungverja varði. Þeir brunuðu í hraðaupphlaup og jöfnuðu metin svo framlengja þurfti leikinn.

Aftur var framlengt eftir fyrstu framlengingu þegar staðan var 30-30. Það voru hins vegar Ungverjar sem höfðu betur eftir síðari framlengingu 34-33 og tryggðu sér sæti í undanúrslitum. Þetta var ekki í fyrsta skiptið sem Ungverjar reyndust gleðispillir því þeir slógu íslenska liðið einnig út í átta liða úrslitum á HM í Japan árið 1997. Þá var Ísland enn í leit að sínum fyrsta verðlaunapening á stórmóti í handbolta ef frá er talin B-keppnin í Frakklandi árið 1989.

Tíu leikmenn í núverandi landsliðshópi Íslands voru í liðinu í London árið 2012 eins og fjallað var um í Fréttablaðinu í morgun. Þeir ætla ekki að láta Ungverja eyðileggja annan draum sinn.

Leikurinn hefst klukkan 17 og verður í beinni útsendingu á Bylgjunni og textalýsingu hér á Vísi.

Hér að neðan má sjá þriggja mínútna samantekt úr leiknum þar sem dramatíkinni er gerð góð skil.

Smella þarf á „Watch on YouTube“ til þess að horfa á myndbandið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×