Handbolti

Arnór Þór kemur inn í íslenska hópinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Arnór Þór Gunnarsson er örvhentur hornamaður.
Arnór Þór Gunnarsson er örvhentur hornamaður. VÍSIR/vilhelm
Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari,  hefur ákveðið að kalla Arnór Þór Gunnarsson til móts við landsliðið í Álaborg vegna óvissu með Þóri Ólafsson.

Þórir var fyrir meiðslum á læri í gær þegar Ísland gerði jafntefli við Ungverja 27-27 og þurftu þeir Rúnar Kárason og Ásgeir Örn Hallgrímsson að leysa stöðu hornamannsins í leiknum í gær.

Arnór kemur til móts við liðið í dag en Ísland mætir Spánverjum í lokaleik riðilsins á morgun. Ísland er komið áfram í milliriðilinn og fer í það minnst þangað með eitt stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×