Handbolti

Anders Eggert kemur inn í danska hópinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Anders Eggert í leik með danska landsliðinu.
Anders Eggert í leik með danska landsliðinu. nordicphotos/getty
Anders Eggert, leikmaður danska landsliðsins í handknattleik, er orðinn leikfær og kemur inn í hóp liðsins fyrir leikinn gegn Tékkum sem fram fer í Herning annað kvöld.

Danir hafa unnið báða sína leiki í riðlinum og eru komnir áfram í milliriðilinn en heimamenn eru gríðarlega sigurstranglegir á mótinu.

Hornamaðurinn  gat ekki leikið með liðinu í leikjunum tveimur en Anders hefur verið í vinstra horninu síðustu stórmót og er að auki ein allra besta vítaskytta í heiminum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×