Handbolti

Þórir: Bjartsýnn á að geta spilað áfram

Henry Birgir Gunnarsson í Álaborg skrifar
Þórir lætur vaða á markið.
Þórir lætur vaða á markið. vísir/daníel
Þórir Ólafsson er að glíma við erfið meiðsli aftan í læri en náði sér nógu góðum til þess að spila í tapleiknum gegn Spánverjum í kvöld.

"Heilsan er þokkaleg. Það verður meðferð á eftir hjá mér og vonandi verður þetta ekki verra en það var. Ef það verður betra er það jákvætt," sagði Þórir en hvernig leið honum í leiknum?

"Á köflum datt ég aðeins niður. Ég náði mér ekki á strik í dag og þetta var lélegt hjá mér. Ég er bjartsýnn á að geta spilað áfram og ég ætla ekki að gefast upp út af þessu.

"Við vorum góðir í um 50 mínútur. Svo slökuðum við aðeins á og þeir keyra yfir okkur. Það er ekki leyfilegt gegn svona liði að slaka á. Tapið var samt leiðinlega stórt.

"Það voru margir óvissir um liðið fyrir mót en við sýndum að það kemur maður í manns stað í þessu liði og það eiga allir skilið að vera hérna sem eru í liðinu."


Tengdar fréttir

Guðjón: Erum að spila frábærlega

Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson var nokkuð jákvæður eftir tapið gegn Spánverjum enda lék íslenska liðið nokkuð vel og átti í fullu tré við heimsmeistarana nær allan leikinn.

Björgvin Páll: Þeir kunna að vinna svona leiki

Íslenska landsliðið tapaði með fimm marka mun á móti heimsmeisturum Spánverja í lokaleik sínum í B-riðli á EM í handbolta í Danmörku. Björgvin Páll Gústavsson átti mjög góðan leik í íslenska markinu en það dugði ekki til.

Aron: Klúðruðum fimm hundrað prósent færum í seinni hálfleik

Íslenska landsliðið tapaði með fimm marka mun á móti heimsmeisturum Spánverja í lokaleik sínum í B-riðli á EM í handbolta í Danmörku. Landsliðsþjálfarinn Aron Kristjánsson talaði eftir leikinn um dauðafærin sem fóru forgörðum í seinni hálfleiknum.

Rúnar: Ég veit að ég get betur

"Við erum að ná að komast fram úr þeim og missum það jafn óðan niður. Ég veit ekki hvað er málið. Hvort það tók svona mikla orku að komast yfir eða hvað," sagði skyttan unga Rúnar Kárason eftir tapið gegn Spáni.

Snorri: Ég mun verja frá Mikkel Hansen

"Eins og við var að búast var þetta erfitt. Við erum inn honum lengi og þetta var hörkuleikur. Við komumst í góða stöðu en áttum þá slæman kafla. Svo er hrikalega dýrt að vera manni færri. Þeir kunna að nýta sér það í botn," sagði Snorri Steinn Guðjónsson eftir tapið gegn Spáni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×