Handbolti

Omeyer klár í slaginn með Frökkum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Thierry Omeyer sést hér til hægri.
Thierry Omeyer sést hér til hægri. nordicphotos/getty
Markvörðurinn Thierry Omeyer er kominn í franska hópinn á Evrópumótinu í Danmörku en hann hefur ekki tekið þátt á mótinu hingað til. 

Omeyer  hefur verið að glíma við meiðsli á olnboga en er nú orðinn leikfær.

Frakkar mæta Serbum í lokaumferð riðlakeppninnar í Danmörku í kvöld en liðið hefur unnið fyrstu tvo leikina í sínum riðli.

Omeyer hefur lengi verið talinn besti markvörður heimsins og hefur unnið allt sem hægt er að vinna í handboltanum, bæði með franska landsliðinu og félagsliðum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×