Handbolti

Lítið gengur hjá Íslandi manni færri og manni fleiri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson í markmannsbúningnum.
Snorri Steinn Guðjónsson í markmannsbúningnum. Vísir/Daníel
Íslenska handboltalandsliðið er með eina slökustu sóknarnýtinguna á EM í handbolta í Danmörku þegar kemur að því að spila bæði manni fleiri og manni færri.

Það hefur athygli að íslenska landsliðið spilar oft með markmann (Snorri Steinn Guðjónsson) í sókninni þegar liðið missir mann af velli í tvær mínútur. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir slaka sóknarnýtingu manni færri.

Samkvæmt tölfræði mótshaldara hefur íslenska landsliðið aðeins skorað 5 mörk úr 20 sóknum manni færri sem gerir 25 prósent sóknarnýtingu. Það eru bara Norðmenn sem eru með slakari sóknarnýtingu manni færri.

Lærisveinar Patreks Jóhannessonar í austurríska landsliðinu eru aftur á móti með bestu sóknarnýtinguna á mótinu í stöðunni manni færri en Austurríkismenn hafa nýtt 15 af 24 sóknin sínum eftir að hafa misst mann af velli sem gerir 63 prósent sóknarnýtingu.

Íslenska liðið er einnig í hópi neðstu liða á Evrópumótinu þegar kemur að því að nýta sér liðsmuninn. Ísland hefur aðeins nýtt 13 af 28 sóknum sínum manni fleiri (46 prósent) og það eru bara Serbar sem státa af lakari nýtingu manni fleiri (45 prósent, 9 mörk í 20 sóknum).

Danir nýta liðsmuninn best en þeir hafa skorað 18 mörk úr 22 sóknum þegar mótherjar þeirra hafa misst mann af velli í tvær mínútur. Það gerir 82 prósent sóknarnýtingu.

Lélegasta sóknarnýtingin á EM manni færri:

Noregur 18 prósent (3 mörk í 17 sóknum)

Ísland 25 prósent (5/20)

Rússland 25 prósent (5/20)

Pólland 27 prósent (7/26)

Króatía 28 prósent (5/18)

Lélegasta sóknarnýtingin á EM manni fleiri:

Serbía 45 prósent (9 mörk í 20 sóknum)

Ísland 46 prósent (13/28)

Pólland 50 prósent (23/46)

Ungverjaland 50 prósent (11/22)

Noregur 52 prósent (14/27)

Besta sóknarnýtingin á EM manni færri:

Austurríki 63 prósent (15 mörk í 24 sóknum)

Frakkland 53 prósent (9/17)

Svartfjallland 50 prósent (6/12)

Tékkland 50 prósent (6/12)

Danmörk 48 prósent (12/25)

Besta sóknarnýtingin á EM manni fleiri:

Danmörk 82 prósent (18 mörk í 22 sóknum)

Króatía 73 prósent (16/22)

Svartfjallaland 73 prósent (16/22)

Makedónía 68 prósent (26/38)

Austurríki 67 prósent (17/27)

Svíþjóð 67 prósent (14/21)


Tengdar fréttir

Kári: Hef meiri leikskilning en hinir í fótboltanum

Það er ávallt létt yfir Eyjapeyjanum Kára Kristjáni Kristjánssyni. Hann fór mikinn á æfingu strákanna í dag. Raðaði inn mörkum í fótboltanum og tók svo létta glímu við Vigni Svavarsson eftir æfingu.

Enn óvissa með Arnór

Þó svo Arnór Atlason sé ekki lengur í sextán manna hópi Íslands á EM þá er ekki loku fyrir það skotið að hann muni koma aftur inn í hópinn.

Frakkar lögðu Króata í stórslag

Frakkland vann mikilvægan sigur á Króötum í milliriðli tvö á Evrópumótinu í handbolta í Danmörku í kvöld. Liðin mættust fyrir fjórum árum í úrslitum Evrópumótsins í handbolta.

Svíar unnu nauman sigur

Þrátt fyrir að hafa misst niður sjö marka forskot í seinni hálfleik náðu Svíar að leggja Rússa að velli 29-27 í milliriðli tvö á Evrópumótinu í handbolta í Danmörku í kvöld.

Pólverjarnir risu upp frá dauðum

Pólverjar unnu ótrúlegan endurkomusigur á Hvíta-Rússlandi, 31-30, í milliriðli á Evrópumótinu í handbolta í Danmörku í dag þrátt fyrir að fyrir fjórum mörkum undir þegar rétt rúmlega fimm mínútur voru eftir.

Strákarnir okkar í fótbolta | Myndband

Það er oft látið mikið með fótboltann á æfingum handboltalandsliðsins. Það er klárlega hápunktur æfinganna hjá strákunum og þeir draga ekki af sér í boltanum.

Boldsen: Aron getur orðið sá besti í heimi

Joachim Boldsen, handboltaspekingur dönsku sjónvarpsstöðvarinnar TV3 Sport, spáir því að Aron Pálmarsson eigi glæstan feril fyrir höndum í handboltanum. Fjallað er um ummæli Boldsen í vefsíðu danska blaðsins Berlingske Tidende.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×