Handbolti

Gunnar Steinn: Það voru ekki margir sem bjuggust við þessu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gunnar Steinn Jónsson, lengst til hægri,  með þeim Arnóri Atlasyni og Snorra Steini Guðjónssyni á blaðamannafundinum í dag.
Gunnar Steinn Jónsson, lengst til hægri, með þeim Arnóri Atlasyni og Snorra Steini Guðjónssyni á blaðamannafundinum í dag. Mynd/Valli
„Ég kom inn sem síðasti maður en stend hérna í dag þannig að ég er mjög ánægður með þetta og stoltur," sagði Gunnar Steinn Jónsson, annar tveggja nýliða í EM-hóp Aron Kristjánssonar.  

Aron valdi Gunnar Stein í 17 manna hópinn sem keppir fyrir Íslands hönd á Evrópumótinu í handbolta í Danmörku en Gunnar var ekki í upphaflega hópnum hjá landsliðsþjálfaranum.

„Það voru ekki margir sem bjuggust við þessu í byrjun en ég held ég hafi náð að standa mig ágætlega á þessum æfingum og sýnt eitthvað aðeins hvað ég get. Auðvitað voru þetta frábærar fréttir," sagði Gunnar Steinn um það þegar hann fréttir að hann færi með til Danmerkur.

Gunnar Steinn hefur verið að standa sig vel með franska liðinu Nantes en hann kom inn í æfingahópinn vegna meiðsla Arnórs Atlasonar. Arnór fer með á EM en Gunnar Steinn tekur sæti Ólafs Bjarka Ragnarssonar sem meiddist á nára í æfingamótinu í Þýskalandi.

Gunnar Steinn skoraði þrjú mörk á æfingamótinu í Þýskalandi. „Þetta voru kannski fáar mínútur en þetta snýst um að nýta þær mínútur sem maður fær og þá fjölgar þeim alltaf jafnóðum. Ég held að ég hafi náð að gera það ágætlega þarna úti," sagði Gunnar Steinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×