Handbolti

Arnór: Ég verð bara að drekka grænan safa á aðfangadag

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arnór Atlason
Arnór Atlason Mynd/AFP
„Ég var í uppstökki í lok æfingar þegar ég ég fann smell í kálfanum,“ segir Arnór Atlason en hann er nýjasta spurningamerkið í landsliðshópi Íslands fyrir EM í Danmörku.

„Ég hugsaði að þetta gæti bara ekki verið að gerast svona rétt fyrir mót. Ég er búinn að vera á góðu róli og þetta er ömurlegt. Þetta mót hefur verið gulrótin mín síðustu mánuði þannig að það væri hræðilegt að missa af því. Ég er samt enn bjartsýnn.“

Læknar liðs Arnórs, St. Raphael, eru búnir að skoða hann og mynda. Arnór mun svo fara í fleiri rannsóknir. Niðurstöðurnar verða svo sendar heim til lækna íslenska landsliðsins.

Verð í kapphlaupi við tímann

„Ég verð að bíða og sjá hver staðan er. Ég mun líklega ekki skilja almennilega eðli meiðslanna fyrr en ég sest niður með læknunum heima. Þetta er vonandi tognun en ekki rifa í vöðvanum sjálfum. Þá er málið aðeins erfiðara,“ segir Arnór en er hann búinn að afskrifa EM ef hann er með rifinn vöðva?

„Nei, alls ekki. Þetta mun samt alltaf verða kapphlaup við tímann. Sama hversu slæm meiðslin eru.“

Arnór mun missa af síðustu tveimur leikjum St. Raphael og heldur heim til Íslands á morgun.

„Ég er því kominn í jólafrí snemma. Það verður svo að fara vel með sig yfir jólin. Ég verð bara að drekka grænan safa á aðfangadag,“ segir Arnór léttur.

Hann varð fyrir því óláni að slíta hásin í nóvember í fyrra. Fyrir vikið var hann lengi frá. Hann flutti sig svo til Frakklands síðasta sumar og var varla kominn þangað er hann puttabrotnaði. Það varð þess valdandi að hann missti nánast af öllu undirbúningstímabilinu og hefur því þurft að vinna sig rólega inn í lið St. Raphael.

„Þetta er búið að vera erfitt. Ég get ekki skrifað þessi meiðsl á álag. Ég hef aldrei verið undir minna álagi. Er að spila minna en ég er vanur og við erum heldur ekki í neinni Evrópukeppni. Þessi meiðsli skrifast því á óheppni frekar en eitthvað annað. Það er gjörsamlega óþolandi. Ég er samt til í að fórna öllu til þess að geta spilað með strákunum á EM í janúar,“ segir Arnór.

Mynd/AFP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×