Sport

Aníta keppir við framtíðarstjörnur Bandaríkjanna í New York

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hlaupakonan Aníta Hinriksdóttir mun byrja næsta ár á risaverkefni því hún keppir þá á einu frægasta innanhússfrjálsíþróttamóti Bandaríkjanna sem haldið er árlega í New York.

Frábær árangur Anítu á þessu ári hefur komið henni í flokk með framtíðarstjörnum heimsins í 800 metra hlaupi kvenna og í framhaldinu fékk hún boð á hið fornfræga og virta innanhússmót, Millrose Games, sem fer fram í 107. sinn í febrúar.

Ein mesta stjarna Bandaríkjanna, Mary Cain (fædd 1996), sem er jafngömul Anítu, ung bresk stúlka, Jessica Judd (fædd 1995), sem hefur verið að hlaupa mjög vel, og Ajee Wilson (fædd 1994), sem er tveimur árum eldri og að verða einn flottasti hlaupari Bandaríkjanna, taka þátt í mótinu.

„Mótshaldarar í Bandaríkjunum langaði til að fá þessar ungu hlaupastjörnur saman í eitt hlaup. Þeir voru búnir að fá samþykki frá Cain og Wilson og töluðu um að það yrði af þessu ef Aníta vildi koma,“ sagði Gunnar Páll Jóakimsson, þjálfari Anítu, í Sportspjallinu sem verður frumsýnt á Vísi í hádeginu í dag.

Þar fer Kolbeinn Tumi Daðason yfir árangur Anítu og annars íslensk frjálsíþróttafólks á árinu 2013 ásamt Gunnari og Þóreyju Eddu Elísdóttur.

Mótið í New York fer fram 15. febrúar en verður þó ekki fyrsta mót hennar á árinu.

„Aníta er líka að fara að keppa á Íslandi í vetur og það verður alþjóðlegt mót 19. janúar í Laugardalshöllinni. Frjálsíþróttasambandið stefnir á að fá tvo til þrjá erlenda keppendur á móti henni á þessu móti, þar af einhverja í hennar styrkleikaflokki,“ sagði Þórey Edda Elísdóttir í Sportspjallinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×