Maður að mínu skapi Bragi Ólafsson skrifar 27. september 2013 06:00 Kveikjan að leikverkinu Maður að mínu skapi – stofuleikur var hvorki persóna Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar né samkynhneigð. Og þaðan af síður kynhneigð Hannesar Hólmsteins. Enda má vera ljóst, strax á fyrstu mínútum verksins, að Guðgeir Vagn, sá sem talinn er vera skopstæling á Hannesi Hólmsteini, líkist í engu þeirri meintu fyrirmynd, hvorki í útliti, látbragði né talsmáta. Og það má heita býsna frumstæð skynjun á leiktexta að jafn óljós fyrirmynd og hér um ræðir sé það sem standi upp úr að leik loknum. Að ásaka höfund um fordóma og fyrirlitningu í garð samkynhneigðs fólks hefur hugsanlega þann tilgang að draga athyglina frá efni leikritsins, en um leið gera slíkar ásakanir lítið úr samkynhneigðum með því að gefa í skyn að ekki megi gera grín að þeim. Ein uppspretta verksins er bók með fleygum orðum sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson tók saman; bók sem mér fannst vera frjór jarðvegur til að vinna úr skáldskap, og öllum er frjálst að nota að vild, jafnvel snúa út úr eða afbaka. Í leikritinu nota ég bók af sömu gerð, sem eins konar vopn í baráttunni sem fram fer á sviðinu; og eins og oft gerist þegar persónur í leik – og raunverulegar manneskjur – grípa til vopna, þá snúast vopnin í höndum þeirra. Enda er líka hugsanlegt að vopnin hafi snúist í höndunum á mér, höfundi þessa leikrits; kannski eiga sumar persónur mínar sér samsvörun við ákveðin öfl í samfélaginu sem ekki þykir við hæfi að gagnrýna eða grínast með á stóra sviði Þjóðleikhússins. Hingað til hef ég reynt að forðast að tjá mig um merkingu eða inntak skáldverka minna – slíkt er ekki hlutverk höfundar – en þar sem umræðan um þetta tiltekna verk, Maður að mínu skapi, er farin að litast af rangfærslum, og alvarlegum ásökunum þeirra sem ekki hafa séð verkið, þá vil ég ítreka að þetta er skáldverk frá grunni, um skáldaðar persónur; og fjalli það um eitthvað ákveðið í mínum huga, þá myndi það vera óheiðarleiki, afneitun og valdafíkn – og skáldskapur sem fer úr böndunum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Ástþór Magnússon í spádómum? Gunnar Karl Halldórsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Halla Tómasdóttir og Sólskinsdrengurinn Margrét Dagmar Ericsdóttir Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira