Lífið

The viking method slær í gegn í London

Marín Manda skrifar
Svava Sigbertsdóttir er í dúndur formi.
Svava Sigbertsdóttir er í dúndur formi.
Svava Sigbertsdóttir einkaþjálfari þjálfar fræga úti í London með æfingum sem nefnast The viking method.

Fyrir níu árum flutti Svava Sigbertsdóttir til London til að læra leiklist, dans og söng. Þegar hún kláraði skólann ákvað hún að læra einkaþjálfun og næringarfræði og fannst hún loksins vera á réttri hillu.

„Ég hef aldrei farið í ræktina bara til að líta út á ákveðinn hátt heldur til þess að líða betur og ef maður nær árangri þá er útlitið bara plús. Það er hægt að gera líkamann að geggjaðri vél og þá færðu aukið sjálfstraust. Æfingarnar sem ég kenni eru mjög tæknilegar og margar hverjar getur þú notað í daglega lífinu. Mest eru notuð fríhendis lóð og svo er meðal annars skriðið í gólfinu, boxað og hoppað í köðlum. Þetta gefur þér rosalegan styrk og þol,“ segir Svava Sigbertsdóttir, sem nú hefur útbúið sérstakt æfingaprógram sem kallast The viking method.

Svava Sigbertsdóttir einkaþjálfari er í glæsilegu formi en hún segir að æfingarnar í The viking method gefi fólki rosalegan styrk og mikið þol.
Svava þjálfar fólk í einkaæfingaklúbbi í London og viðskiptavinir hennar eru oft þekktir og efnaðir. Þar má nefna Ritu Ora söngkonu, meðlimi úr konungsfjölskyldunni og Mrs. Mittal sem er gift stærsta stálframleiðanda heims. Aðspurð um fitness-menninguna á Íslandi segir hún Íslendinga einblína of mikið á að lyfta þungum lóðum og að ekki megi gleyma öðrum hliðum fitness. 

„Að mínu mati snýst þetta allt um jafnvægi. Að æfa líkamann þannig að þú sért jafnvígur í þoli og styrk, snerpu og sprengikrafti. Það má ekki fara út í of miklar öfgar þrátt fyrir að Íslendingar séu mjög harðir af sér.“ Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um fjarþjálfun í gegnum www.thevikingmethod.com.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×