3 milljónir á mánuði og á lúxusjeppum Helgi Vilhjálmsson skrifar 13. febrúar 2013 06:00 Vorið 2009 afhenti ég forsætisráðherra undirskriftir 21 þúsund Íslendinga sem vildu taka til í lífeyrissjóðunum. Forsætisráðherra lofaði fundi en aldrei heyrðist í henni og ekkert gerðist. Alþingi hefur ekki hafið rannsókn á lífeyrissjóðunum, þó svo að það hafi verið samþykkt 63 gegn 0 að gera það. Ég hef birt auglýsingar í blöðum til að vekja athygli á aðbúnaði aldraðra en mér finnst það réttlátt að lífeyrissjóðirnir láti fé okkar sem greiða í þá í ný og betri hjúkrunarheimili. Ég hef gagnrýnt stjórnendur sjóðanna um margra ára skeið, en sjálfur gekk ég í lífeyrissjóð árið 1964. Það er m.a. ótrúlegt að stjórnendur hafi sumir hverjir þrjár milljónir í laun á mánuði og aki um á lúxusjeppum.Gildi lífeyrissjóður Í auglýsingunum hef ég spurt hvort hugmyndir mínar um að lífeyrissjóðirnir fjárfestu í búsetuúrræðum fyrir aldraða hefðu hugsanlega verið betri fjárfesting, en að gambla á markaðnum. Svörin hafa verið þau að samkvæmt lögum mættu lífeyrissjóðirnir ekki fjárfesta á þennan hátt heldur ættu eingöngu að hámarka arðsemi og taka þ.a.l. meiri áhættu, það væri arðsamasta fjárfestingin. Í annarri auglýsingu bendi ég á að tekjurnar í Gildi, öðrum af tveimur stærstu lífeyrissjóðum landsins, voru um 21 milljarður en útgreiddur lífeyrir var hins vegar aðeins 7, 8 milljarður. Tveir þriðju af tekjunum urðu því eftir í sjóðnum. Hrein eign Gildis var þá um 241 milljarður. Sú upphæð ein og án vaxta myndi duga til útgreiðslu lífeyris í 30 ár og 11 mánuði.Lífeyrissjóður verslunarmanna Greidd iðgjöld í Lífeyrissjóð verzlunarmanna, annan af tveimur stærstu lífeyrissjóðum landsins, um árið voru tæpir 16 milljarðar. Alls voru tekjurnar um 34 milljarðar en útgreiddur lífeyrir var aðeins rúmir 6,8 milljarðar króna. Aðeins um fimmtungur var greiddur út. Lífeyrisþegar eiga að fá að njóta þessara tekna og lífeyristekjur verða að hækka. Ég hef kynnt mér stefnuskrá Hægri grænna, flokks fólksins og get ég ekki séð annað en að þarna sé kominn stjórnmálaflokkur sem ætlar sér að taka á lífeyrissjóðunum og gera eitthvað fyrir gamla fólkið. Hægri grænir vilja: a) að kjaraskerðing aldraðra, sem tók gildi 1. júlí 2009, verði afturkölluð, b) að lífeyrir aldraðra verði hækkaður um 20%, c) afnema skerðingu tryggingarbóta vegna greiðslna úr lífeyrissjóði, d) að skattleysismörk verði hækkuð og ekkjuskattinn burt, e) stoppa allar hugmyndir um að selja Landsvirkjun til lífeyrissjóðanna, f) að lífeyrissjóðir fjárfesti og fjölgi til muna búsetuúrræðum fyrir eldri borgara, g) erfanleg lífeyrisréttindi eins og í Frjálsa lífeyrissjóðnum, h) sjóðsfélagar í lífeyrissjóðum verða að fá atkvæðisrétt um stjórn á sínum eigin sjóðum, i) og að lífeyrisgreiðslur í almenna lífeyrissjóðakerfinu séu eign lífeyrisgreiðandans og ættu maki hans og börn að fá allan lífeyri greiddan við fráfall. Staðreyndin er að verkafólk og ellilífeyrisþegar fá ekki nóg út úr lífeyrissjóðunum sem eiga þó nóg af peningum. Íslenskur verkalýður verður að setja hnefann í borðið! Hvaða þýðingu hefur það að safna í digra sjóði meðan eldri borgarar þessa lands svelta? Setum X við G og kjósum Hægri græna í vor, þeir eru með lausnirnar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Ástþór Magnússon í spádómum? Gunnar Karl Halldórsson Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Halla Tómasdóttir og Sólskinsdrengurinn Margrét Dagmar Ericsdóttir Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira