Handbolti

Sterbik missir af EM

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Arpad Sterbik að verjast Dominik Klein
Arpad Sterbik að verjast Dominik Klein
Spænska landsliðið í handbolta varð fyrir áfalli þegar staðfest var að Arpad Sterbik, markmaður liðsins verður ekki með á úrslitakeppni Evrópumótsins í handbolta sem fer fram í Danmörku í janúar.

Sterbik sem er markmaður spænska liðsins og Barcelona er einn af leikmönnunum sem tilnefndir eru sem handboltamaður ársins 2013. Spánverjar eru ríkjandi heimsmeistarar en hafa ekki unnið til verðlauna á Evrópumótinu síðan í Sviss 2006.

Sterbik er talinn einn af bestu markvarða heimsins og verða þessi tíðindi að teljast jákvæð fyrir íslenska landsliðið. Spánverjar eru með Íslendingum, Ungverjum og Norðmönnum í riðli á mótinu. Á sama tíma var staðfest að rétthenta skyttan Iosu Goni verður heldur ekki með liðinu vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×