Handbolti

Ólafur Guðmundsson: Ég er 100% núna

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Ólafur gæti verið í stóru hlutverki í Danmörku
Ólafur gæti verið í stóru hlutverki í Danmörku mynd/vilhelm
„Ég er fullur sjálfstrausts og það gengur vel. Ég þakka það að vera heill heilsu. Ég fór í axlaraðgerð fyrir síðasta tímabil. Ég fór að gera hluti sem ég var ekki vanur að gera og náði ekki að spila minn leik,“ sagði Ólafur Guðmundsson sem er tilbúinn í stórt hlutverk með íslenska handboltalandsliðinu.

„Núna er ég heilsuhraustur og ákveðinn og með sjálfstraust og næ að njóta þess,“ sagði Ólafur sem hefur leikið frábærlega með Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í vetur.

„Við erum sterkari í ár en í fyrra. Ég er í stærra hlutverki í ár en svipuðu hlutverki hjá liðinu. Munurinn er að ég er 100% núna. Ég skýt alveg eins og ég gerði áður.

„Þetta var kannski meira í hausnum á mér í fyrra. Ég treysti ekki öxlinni og þorði ekki að leggja allt í skotið en núna er ég búinn að vera verkjalaus í marga mánuði og sjálfstraustið í botni,“ sagði Ólafur sem segist hafa lært mikið af erfiðleikum sínum á heimsmeistaramótinu á Spáni í fyrra.

„Ég spái ekki of mikið í því. Þetta spilaðist ekki fyrir mig. Svona var það og nú er að horfa fram á vegin og nýta meðbyrinn sem er núna og vera ákveðinn.

„Ég lærði mikið af mistökunum á HM og er búinn að fara yfir þetta í höfðinu og læra af þessu. Ég reyni að gera betur og það gengur vel.“

Fari svo þeir lykilmenn sem eru meiddir verði ekki klárir í slaginn þegar EM í Danmörku hefst má reikna með að Ólafur verði í stóru hlutverki.

„Ég er að sjálfsögðu klár í slaginn. Mér er búið að ganga vel og er að spila vel með mínu félagsliði. Ég ætla að halda áfram að gera það sem ég er að gera. Ég ætla að spila minn leik og gera það sem ég er góður í en ekki að reyna að gera eitthvað sem er ekki minn leikur.

„Ég mun reyna allt sem ég get til að hjálpa liðinu að ná árangri, sama hvert mitt hlutverk verður,“ sagði Ólafur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×