Handbolti

Þjóðverjar vilja framlengja við Heuberger

Það hefur ekki gengið allt of vel hjá þýska landsliðinu í handknattleik undir stjórn Martin Heuberger. Liðinu mistókst til að mynda að komast á EM í janúar.

Þrátt fyrir það vill þýska handknattleikssambandið framlengja við þjálfarann, Martin Heuberger, en samningur hans rennur út í lok næsta árs.

"Hann þarf að koma liðinu á HM árið 2015. Ef það tekst þá verður hann áfram með liðið því við höfum mikla trú á honum," sagði formaður þýska handknattleikssambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×