Sport

Helga María nældi í silfur

Helga María og María Guðmundsdóttir.
Helga María og María Guðmundsdóttir. mynd/skí
Helga María Vilhjálmsdóttir varð í öðru sæti í stórsvigi á FIS-móti í Trysil í dag. Hún skoraði með því 30.09 FIS-punkta en hún var með 39.54 punkta fyrir.

Tvær aðrar íslenskar stelpur tóku þátt í mótinu en María Guðmundsdóttir endaði á fimmta sæti. Var 2,69 sekúndum á eftir fyrsta sætinu.

Auður Brynja Sölvadóttir varð í 27. sæti. Fínn árangur hjá stelpunum.

Annað stórsvigsmót fer fram á sama stað síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×