Afrísk og íslensk neyð Konráð Guðjónsson skrifar 13. desember 2013 18:12 Í mars síðastliðnum samþykkti Alþingi nær einróma þingsályktunartillögu um að auka útgjöld til þróunarsamvinnu á næstu árum og t.a.m. áttu þau að aukast um rúmar 600 milljónir króna á næsta ári. Nú eru þær áætlanir í algjöru uppnámi og áætlað er að framlög til þróunarmála verði enn og aftur skorin verulega niður, þrátt fyrir að stuðningur almennings við málaflokkinn sé mikill. Þróunarsamvinna hefur fengið á sig ýmsa gagnrýni síðustu áratugi. Sem dæmi má nefna að of miklir fjármunir lendi í höndum þeirra sem ekki þurfa á þeim að halda, ýmis verkefni gegni litlum sem engum tilgangi og að þróunarsamvinna dragi úr hvata þiggjenda aðstoðar til að bjarga sér sjálfir. Margt af þessari gagnrýni hefur átt rétt á sér og er skiljanleg, enda er framkvæmd þróunarsamvinnu ófullkomin og ekki einföld eins og svo margt annað. Í raun er gagnrýni og aðhald bráðnauðsynlegt fyrir starfsemi þar sem mannslíf eru í húfi á hverjum degi og sýslað er með skattfé, enda hefur verið brugðist við henni að ýmsu leyti. Í dag eru t.d. íbúar landa sem þiggja aðstoð hafðir mun meira í samráði við veitendur, sem eykur líkur á að verkefni komi að gagni. Á Íslandi fer lítið fyrir slíkri uppbyggilegri og vel rökstuddri gagnrýni. Í raun er ekkert um slíkt. Gagnrýnin snýst yfirleitt um að Íslendingar eigi bágt og hafi því ekki efni á þróunarsamvinnu. Formaður fjárlaganefndar lét hafa eftir sér að „gjaldþrota maður getur ekki borgað fyrir aðra“ og að fyrrverandi ríkisstjórn hafi „sóað ríkisfé í gæluverkefni… og takið eftir, þróunarhjálp hjá öðrum ríkjum þegar Íslendingar sjálfir svelta.“ Nú síðast sagði fjármálaráðherra að til skoðunar sé að skera niður framlög til þróunarsamvinnu til að auka fjárframlög í heilbrigðiskerfinu. Þrátt fyrir allt þá búa Íslendingar samt við einhver bestu lífskjör sem fyrirfinnast í heiminum. Til dæmis er landsframleiðsla á mann um 47 sinnum hærri á Íslandi heldur en í Malaví, sem Íslendingar hafa stutt lengi, og Ísland er í 13. sæti af 187 löndum á lífskjaravísitölu Sameinuðu þjóðanna. Á Íslandi fá allir ókeypis menntun, allir hafa ótakmarkaðan aðgang að hreinu vatni og ríkið niðurgreiðir góða heilbrigðisþjónustu að mestu. Í samstarfslöndum Íslendinga er ókeypis menntun mjög takmörkuð og léleg, margir hafa engan aðgang að hreinu vatni og þeir fáu sem hafa aðgang að góðri heilbrigðisþjónustu þurfa að borga fúlgur fjár fyrir. Það er lítil reisn yfir því að eitt af ríkustu löndum heims rökstyðji niðurskurð til aðstoðar við þá fátækustu í heiminum með því að það sé svo fátækt sjálft. Þeir sem þekkja til aðstæðna í þróunarlöndum eru eflaust margir sammála um að í viðhorfi íslenskra ráðamanna, sem og annarra, birtist ákveðið vanþakklæti á þeim kostum sem felast í því að búa á Íslandi og vera Íslendingur. Má þá biðja um að ef áhugi er fyrir því að skera niður framlög til þróunarsamvinnu, þvert á vilja landsmanna, að það byggist á öðru en að Íslendingar séu svo fátækir. Við höfum vel efni á því að leggja fjármuni í þróunarsamvinnu. Það væri því heiðarlegra að segjast einfaldlega ekki tíma því. Má þá einnig biðja um að við lærum að meta það sem við höfum, í stað þess að halda því fram að íslensk og afrísk neyð séu á einhvern hátt samanburðarhæf. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 18.05.2024 Halldór Halla Hrund eða Katrín? Reynir Böðvarsson Skoðun Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun Er klassískt frjálslyndi orðið að jaðarskoðun? Kári Allansson Skoðun Góð gildi og staðfesta Höllu Hrundar Margrét Reynisdóttir Skoðun Kynhluthlaust mál, máltilfinning og forsetaframboð Höskuldur Þráinsson Skoðun Forseti Íslands veifaði mér Fjóla Einarsdóttir Skoðun Til áréttingar Kári Stefánsson Skoðun Ákall til framtíðar: Nám í félagsráðgjöf! Steinunn Bergmann Skoðun Í framhaldi af viðtali við Helgu Þórisdóttur Kári Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða eiginleika þarf forseti að hafa? Hildur Eir Bolladóttir skrifar Skoðun Þegar ég heyri nafnið Katrín Jakobsdóttir Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Í framhaldi af viðtali við Helgu Þórisdóttur Kári Stefánsson skrifar Skoðun Góð gildi og staðfesta Höllu Hrundar Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Halla Hrund eða Katrín? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Til áréttingar Kári Stefánsson skrifar Skoðun Kynhluthlaust mál, máltilfinning og forsetaframboð Höskuldur Þráinsson skrifar Skoðun Er klassískt frjálslyndi orðið að jaðarskoðun? Kári Allansson skrifar Skoðun Forseti Íslands veifaði mér Fjóla Einarsdóttir skrifar Skoðun Ákall til framtíðar: Nám í félagsráðgjöf! Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Lexía lærð á hálfum degi Stefanía Arnardóttir skrifar Skoðun Ég kýs Helgu Þórisdóttur Gerður Rún Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Yfirborðskenndur stríðsáróður og McCarthýismi hjá háskólaprófessor Tjörvi Schiöth skrifar Skoðun Formaður húsfélagsins Guðmundur Andri Thorsson skrifar Skoðun Opið bréf til landsliðsmanna Íslands í blaki Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar Skoðun Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Kosningum frestað Ása Berglind Hjálmarsdóttir,Hrönn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Mesti stjórnmálamaðurinn? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Birni Bjarnasyni svarað Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Baldur Þórhallsson er vitur og vís Bryndís Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Kjósum Katrínu Kjartan Ragnarsson skrifar Skoðun Neikvæð áhrif þess að útiloka forsetaframbjóðendur frá kappræðum strax komin í ljós Ástþór Magnússon skrifar Skoðun Nýtt sveitarfélag Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Stafrænn ójöfnuður á upplýsingaöld Stella Samúelsdóttir,Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Varfærnisleg fagnaðarlæti Berglind Sunna Bragadóttir skrifar Skoðun „Ég skal baka fyrir Gunnar en ég kýs Kristján“ Páll Magnússon skrifar Skoðun Daðrað við sölu Björn Sævar Einarsson skrifar Skoðun Rannsóknir á söfnum skapa dýrmæta þekkingu Arndís Bergsdóttr skrifar Skoðun Sagan sem verður að segja Drífa Snædal skrifar Sjá meira
Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Skoðun Yfirborðskenndur stríðsáróður og McCarthýismi hjá háskólaprófessor Tjörvi Schiöth skrifar
Skoðun Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson skrifar
Skoðun Neikvæð áhrif þess að útiloka forsetaframbjóðendur frá kappræðum strax komin í ljós Ástþór Magnússon skrifar
Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun