Sport

Jóhann Rúnar er knapi ársins

Jóhann Rúnar Skúlason.
Jóhann Rúnar Skúlason. Mynd/Rut Sigurðardóttir
Töltmeistarinn Jóhann Rúnar Skúlason hefur verið útnefndir knapi ársins hjá Landssambandi hestamannafélaga.

Jóhann Rúnar varð tvöfaldur heimsmeistari á stóðhestinum Hnokka frá Fellskoti á heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem fram fór í Berlín í ágúst.

Jóhann Rúnar er afreksknapi af guðs náð og á að baki marga sigra á heims- og Norðurlandamótum. Hann hefur tekið þátt í heimsmeistaramótum íslenska hestsins síðan 1997 og unnið á annan tug heimsmeistaratitla í hestaíþróttum sem og allnokkra Norðurlanda- og Danmerkurmeistaratitla.

Jóhann Rúnar er öðrum knöpum fyrirmynd, hann þjálfar hesta sína af kostgæfni og alúð og undirbýr bæði sjálfan sig og hestinn af mikilli nákvæmni fyrir þau átök sem keppni í hestaíþróttum fylgir. Hann er því afar vel að titlinum „Knapi ársins“ kominn segir í tilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×