Lífið

Vísir og Mjölnir kynna vikuleg æfingamyndbönd

Bardagaíþróttaklúbburinn Mjölnir og Vísir hafa tekið höndum saman og bjóða upp á æfingu vikunnar á hverjum mánudegi. Víkingaþrek Mjölnis hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár en þar er blandað saman hefðbundnum líkamsræktaræfingum og æfingum úr blönduðum bardagalistum.

Í fyrsta myndbandinu fer Gunnar Þór Þórsson, margfaldur Íslandsmeistari í boxi og einn af þjálfurum Mjölnis, yfir bein högg og króka. Unnið er í 20 sekúndur í einu, tíu sekúndur í hvíld - átta umferðir í allt.

Jón Viðar Arnþórsson á heiðurinn af myndbandinu en grafíkina gerði Finnbogi Þór Erlendsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×