Harmageddon

"Bradley Manning átti aldrei séns“

Frosti Logason skrifar
Birgitta
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, segist hafa átt von á hörðum dómi yfir hermanninum Bradley Manning. Þrjátíu og fimm ár í fangelsi er þó, að hennar mati, fáránlegur dómur og ekki í neinu samræmi við það sem Manning var ákærður fyrir.



„Þetta mál hefur verið pínulítið niðurlægjandi fyrir bandarísk yfirvöld og ég held að þau séu að hefna sín svolítið á honum fyrir það“ segir Birgitta en hún telur dóminn einnig vera mjög skýr skilaboð til Edward Snowdens um að fara ekki til bandaríkjanna. 

Birgitta segir mikilvægt að fólk átti sig á að svona dómur getur haft kælingaráhrif á alla þá sem vilja stíga fram og uppljóstra um siðlausa og glæpsamlega hegðun stjórnvalda.

Hægt er að hlusta á viðtalið við Birgittu hér að ofan.








×