Harmageddon

Ný lög á nýju ári

Atli Fannar Bjarkason skrifar
Páll Óskar er á leiðinni í hljóðver á nýju ári.
Páll Óskar er á leiðinni í hljóðver á nýju ári. Mynd/Valli
Árinu er að ljúka og Páll Óskar Hjálmtýsson, poppstjarna Íslands, er að klára að bóka það næsta. Árið hjá Páli Óskari endar eins og 2007 og 2008 reyndar líka: með roksölu á nýjustu plötunni og sinaskeiðabólgu eftir þúsundir eiginhandaráritana. Í þetta skipti er það tónleikaplatan Páll Óskar og Sinfó sem er rifin út úr verslunum.

„Ég er í skýjunum með viðtökurnar," segir Páll Óskar. „Þetta er búið að ganga vonum framar. Ég get ekki beðið um meira. Það besta við þetta er, að eftir alla vinnuna við tónleikana þá líður mér núna eins og ég sé með hreint borð. Ég er eins og tómt óskrifað blað. Nú get ég farið aftur inn í stúdíó að vinna nýtt efni. Áramótaheitið mitt er að ég ætla að helga árinu 2012 lagasmíðum og reyna að vera eins duglegur í því eins og ég get. En ég ætla að leyfa því að gerast á sínum tíma."

Þó að Sena hafi gefið út tónleikaplötuna með Sinfóníunni, þá er Páll ennþá sinn eigin herra í útgáfu á breiðskífunum sínum. Hann segir það hafa ýmsa kosti í för með sér, meðal annars að hann er ekki undir neinni pressu að gefa út, heldur getur leyft því að gerast þegar honum finnst lögin vera tilbúin. „Ég held áfram að vinna lögin, þangað til mér líður eins og þau séu tilbúin. Þannig að ég mun gefa út smáskífur á árinu, vonandi með myndböndum. Svo ef mér líður eins og lögin séu ekki komin, í júní eða júlí, þá ætla ég að hinkra næstu jól og gefa þá út næstu plötu 2013."

Þú vannst Unicef-lagið, Megi það byrja með mér, sem kom út á dögunum, með upptökustjórateyminu Redd Lights. Er það eitthvað sem þú ætlar að gera meira að? Þ.e.a.s vinna með ungum lagasmiðum og upptökustjórum?

„Alveg örugglega. Það kom mér á óvart hvað þeir í Redd Lights vita mikið um tónlist. Þó að þeir séu ungir þá vita þeir alveg hver Giorgio Moroder er. Það fílaði ég í botn. Það þurfti ekkert að útskýra fyrir þeim. Mér fannst þetta lag frábær stökkpallur í eitthvað annað og meira."

Verða þá líka menn eins og Örlygur Smári inni í myndinni?

„Já, alveg örugglega. Það er svo gott að vinna með honum. Ég er umkringdur snillingum í hverju horni. Það er saga lífs míns. Ekkert af þessu hefur gerst af sjálfu sér. Ég hef alltaf verið umkringdur snillingum; lagasmiðum og útsetjurum og textahöfundum og fatahönnuðum. Ég geri þetta aldrei einn. Þetta er alltaf samstarf og það er svo æðislegt. Þannig að ég held öllu opnu. Stuðið felst í því að leita, velta steinum og taka sénsa. Það skemmtilegasta sem ég geri er að stilla sjálfum mér upp við vegg og gera hluti sem ég er ekki viss um að komi sérstaklega vel út. Hluti sem líta ekki út fyrir að virka. Það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég fékk Gordjöss í hendurnar var nákvæmlega þetta: Annaðhvort mun þetta lag marka endalok ferils míns eða að það verður stærri hittari en Ég er á leiðinni með Brunaliðinu."

Taldirðu að það væri raunverulegur möguleiki á því að þetta lag myndi rústa ferlinum þínum?

„Já. Allra fyrstu viðbrögðin voru slæm. Sumt fólk virkilega hélt að núna hefði síðasta lausa skrúfan í hausnum á mér endanlega losnað. Það var ekki fyrr en fólk fékk að vita að Bragi Baggalútur hefði samið lag og texta. Þá fattaði fólk þetta. Þetta er auðvitað brilliant. Þetta er eins og frægir grínistar í Bandaríkjunum myndu semja lag um Madonnu og fá hana sjálfa til að syngja það. Ég held að hún ætti að gera slíkt. Hún hefur nú svo góðan húmor fyrir sjálfri sér. Það er líka lífsnauðsynlegt þegar þú ert í þessari stöðu. Ég veit ekkert hallærislegra en poppstjörnur sem hafa ekki húmor fyrir sjálfum sér."

Palli og bleika jólatréð

„Ég hef aldrei í lífinu keypt mér gervijólatré. Loksins þegar ég tók þessa ákvörðun þá vildi ég ganga alla leið og hafa þetta ekta gervi," segir Páll Óskar spurður um bleika jólatréð sem prýðir forsíðu Popps ásamt honum. „Ég beit það í mig og fékk einhverja þráhyggju fyrir bleikum jólatrjám. Ég sá bleikt jólatré í Pier-búðinni, en það reyndist ekki vera til sölu. Þá voru góð ráð dýr. Ég fann svo hvítt jólatré í Garðheimum sem passaði fullkomlega inn í stofuna mína. Svo fór ég í Poulsen í Skeifunni og lét sérblanda rétta bleika litinn á úðabrúsa. Þannig að ég stóð úti í garði að spreyja hvíta jólatréð bleikt. Ég held ég hafi séð nefið á öllum nágrönnunum á rúðunum. Allir að tékka á hvað í ósköpunum Palli væri að gera núna."

Páll er gríðarlega ánægður með útkomuna og segir tréð vera forkunnarfagurt. „Og það spilar með augun í manni," segir hann. „Augun á manni reikna alltaf með því að jólatré eigi að vera græn og kúlurnar hvítar eða rauðar. En þegar þú sérð bleikt jólatré með svörtum kúlum, þá ferðu inn í annan heim. Þetta er eins og að sjá negatívu af jólatré. Ég hef aldrei verið jafn stoltur af neinu jólatré, þetta er það fallegasta sem ég hef séð."

Páll er mikið jólabarn. Hann er yngstur í sjö systkina hópi og getur því valið ansi marga staði til að borða jólamatinn. „Að vera endilega hér eða þar, er ekki skrifað í stein. En þegar ég er búinn að borða og taka upp pakka, þá er ég mættur í Fríkirkjuna í Reykjavík klukkan svona tíu. Við Monika Abendroth sjáum alltaf um tónlistarflutninginn í miðnæturmessu Fríkirkjunnar á aðfangadag. Þetta er níunda árið í röð sem við gerum það. Þarna koma jólin fyrir mér."

Svo kemur jóladagur og þá er Páll að eigin sögn heima á náttfötunum. „Ég slekk algerlega á mér, sef út, blaða í bók, horfi á bíómynd — oftar en ekki af filmu. Ég á super 8mm kvikmyndasýningarvél og elska að horfa á gamlar alvöru bíómyndir af filmu heima hjá mér. Á annan í jólum, þá er stóra fjölskylduboðið. Þar sem ég er yngstur af sjö systkinum, og pabbi og mamma eru bæði farin, þá höfum við þetta þannig að allir afkomendur pabba og mömmu hittast undir sama þaki. Í ár skilst mér að fjölskyldumeðlimur númer 33 hafi verið að bætast í hópinn. Þetta er fljótt að koma þegar systkinin eru sjö."








×