Bíó og sjónvarp

Game of Thrones vann til áhorfendaverðlauna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Teymið að baki Game of Thrones þáttunum tók á móti verðlaununum í gær.
Teymið að baki Game of Thrones þáttunum tók á móti verðlaununum í gær. Mynd/ Getty.
Þriðja þáttaröðin af Game of Thrones vann áhorfendaverðlaunin á sjónvarpsverðlaunahátíð BAFTA sem haldin var í London í gærkvöld. Þetta voru einu verðlaunin sem áhorfendur gátu kosið um. Game of Thrones þættirnir hafa verið sýndir víða um heim við miklar vinsældir, meðal annars hér á Íslandi. Þættir úr annarri og þriðju þáttaröðinni voru að stórum hluta til teknir upp á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×