Bíó og sjónvarp

Fjórða serían af Game of Thrones

HBO sjónvarpsstöðin hefur ákveðið að ráðast í gerð fjórðu þáttaraðarinnar um Game of Thrones. Fyrsti þátturinn í þriðju þáttaröðinni var sýndur í Bandaríkjunum á sunnudaginn og horfðu 4,4 milljónir manna á hann.

Þátturinn var svo sýndur á Stöð 2 í fyrrakvöld.

Önnur og þriðja þáttaröðin voru að verulegu leyti teknir upp hér á Íslandi. Önnur þáttaröðin var tekin upp á Mýrdalsjökli en þriðja þáttaröðin á Norðurlandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×