Innlent

Fá að lesa útskrift af símtali Davíðs og Geirs

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaganefndar Alþingis.
Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaganefndar Alþingis. Mynd/ GVA.
Fjárlaganefnd fær að lesa útskrift af símtali Davíðs Oddssonar, þáverandi seðlabankastjóra, og Geirs Haarde, þáverandi forsætisráðherra, þar sem þeir ræddu þrautavaralán til Kaupþings með veði í FIH. Þetta kemur fram í bréfi Seðlabankans til fjárlaganefndar. Nefndn hefur farið fram á að fá útskrift af samtalinu afhenta.

Í bréfinu, sem Vísir hefur undir höndum, segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri, að lánveitingin til Kaupþings hafi ekki verið afgreidd í samræmi við þær reglur um þrautavaralán sem bankastjórn hafði sett sjálf. Þetta megi þó væntanlega að einhverju leyti skýra með því hversu brátt málið bara að.

Í bréfinu segir Már jafnframt að hann hafi hugað að því hvernig hann geti komið til móts við fjárlaganefnd vegna kröfu um að fá útskrift af samtalinu afhenta, án þess að brjóta í bága við þagnarskyldu sína.

„Seðlabankinn er þvi tilbúinn að hafa svipað fyrirkomulag og haft var gagnvart utanríkismálanefnd og fjárlaganefnd varðandi aðra mikilvæga upptöku á símtali. Það myndi fela í sér að nefndarmenn fengju að lesa útskrift af símtalinu á sérstökum fundi nefndarinnar með fulltrúum Seðlabankans. Nefndarmenn fengju ekki að halda eintökum af því né mætti vitna til þess í skýrslum sem gerðar eru opinberar. Þetta fyrirkomulag myndi hins vegar gera nefndinni kleyft að taka mið af símtalinu, eftir því sem viðeigandi getur talist, í almennum niðurstöðum sínum varðandi það efni sem hún segist hafa til umfjöllunar," segir í bréfinu.

Stefán Jóhann Stefánsson, upplýsingafulltrúi Seðlabankans, segir að málið sé enn ekki komið á það stig að af því geti orðið að nefndarmenn í fjárlaganefnd fái á sjá útskriftina.

Hér að neðan getur þú séð bréf Seðlabankans til nefndarinnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×