Mikill meirihluti þjóðarinnar vill leyfa olíuvinnslu á Drekasvæðinu Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 19. janúar 2013 18:37
Áttatíu prósent landsmanna eru fylgjandi því að stjórnvöld leyfi olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Ný skoðanakönnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins sýnir einnig að á meðal kjósenda VG er stuðningurinn rúm sextíu prósent. Í könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins sem gerð var sextánda og sautjánda þessa mánaðar var fólk meðal annars spurt út í álit sitt á mögulegri olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Spurt var: Hversu fylgjandi eða andvígur ertu því að íslensk stjórnvöld leyfi olíuvinnslu á Drekasvæðinu? Rúmur helmingur, eða fimmtíu og tvö prósent aðspurðra segjast vera mjög fylgjandi olíuvinnslu á svæðinu. Tuttugu og átta prósent segjast síðan frekar fylgjandi hugmyndinni. Ellefu prósent eru hvorki fylgjandi né andvíg hugmyndinni og fimm prósent eru frekar andvíg. Fjögur prósent eru leggjast síðan alfarið gegn því að olíuvinnsla verði leyfð á Drekanum. Ef litið er til þess um hvort kynið er að ræða sést að áttatíu prósent karla eru fylgjandi hugmyndinni og en sjötíu og þrjú prósent kvenna. Búseta virðist fremur lítil áhrif hafa á skoðanir fólks til olíuvinnslunnar. Sjötíu og átta prósent höfuðborgarbúa eru fylgjandi vinnslu á svæðinu en áttatíu og fjögur prósent landsbyggðarfólks. Tíu prósent borgarbúa segjast síðan andvíg vinnslunni og níu prósent landsbyggðarfólks. Ef litið er til þess hvaða flokka fólk segist styðja kemur í ljós að stuðningurinn er mestu á meðal sjálfstæðis- og framsóknarmanna en áttatíu og sjö prósent hinna fyrrnefndu eru fylgjandi og áttatíu og fimm prósent þeirra síðarnefndu. Samfylkingarfólk er líka jákvætt í garð olíuvinnslunnar en sjötíu og fimm prósent þeirra segjast fylgjandi hugmyndinni á meðan sautján prósent eru andvíg. Sjötíu og sjö prósent kjósenda Bjartrar framtíðar eru fylgjandi hugmyndinni og ellefu prósent eru á móti. Það sem sumum gæti komið á óvart er að kjósendur Vinstri grænna skera sig ekki mjög mikið úr þrátt fyrir mikla áherslu flokksins á náttúruvernd og umhverfismál. Sextíu og eitt prósent kjósenda þeirra eru fylgjandi því að leyfi verði veitt fyrir olíuvinnslu á Drekasvæðinu og þrjátíu prósent kjósenda þeirra eru því andvígir.
Mest lesið Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Innlent Vænsti maður og harðduglegur Innlent Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést Innlent Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Innlent Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Innlent Næsta gos gæti hafist á hverri stundu Innlent Fleiri fréttir „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Næsta gos gæti hafist á hverri stundu „Kisuprestar“ á Snæfellsnesi Hið opinbera skuldi sér og öðrum mæðrum afsökunarbeiðni Starfsmaður Sjúkratrygginga grunaður um fjárdrátt Óska eftir tilnefningum um Reykvíking ársins Þvingun úr landi og prestar í kisubúning Veikindi Blessing ekki nógu mikil til að fresta brottvísun Vænsti maður og harðduglegur Spreyjaði málningu á bifreiðar í miðbænum Fluttur með þyrlu til Reykjavíkur eftir árekstur Kaldavatnslaust á Arnarnesi Telur ekki viðeigandi að tjá sig um mál Maríu Sigrúnar Þurfi að gera úrbætur en ástandið verið ýkt Lilja hefur áhyggjur af „nýlenskunni“ á RÚV Lýsa eftir Bandaríkjamanni Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Göngin lokuð á miðvikudagskvöld Tekur til varna eftir stuðningsyfirlýsingu við Katrínu Maðurinn ríkisborgari Möltu Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Áhorf á úrslit Eurovision hríðféll Sýnist stefna í kapphlaup tveggja en útilokar þó ekki vendingar Mótmæla þróun gervigreindar á Austurvelli Veit ekki hvort hann fái svar áður en spurningin verði úrelt Auknar líkur á gosi sem gæti hafist án fyrirvara Guðni heldur utan til að kveðja Margréti Þórhildi Telur ástandið á sauðfjárbúinu ekki eins slæmt og menn vilja vera láta Sjá meira