Innlent

Lögreglan rannsakaði of mikið

SH skrifar
Maðurinn sætti varðhaldi í tvo mánuði en fékk aðeins skilorðsbundinn dóm.fréttablaðið/vilhelm
Maðurinn sætti varðhaldi í tvo mánuði en fékk aðeins skilorðsbundinn dóm.fréttablaðið/vilhelm
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær 29 ára mann í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vopnalagabrot, brot gegn valdstjórninni og hylmingu.

Sérsveit lögreglu réðst inn á heimili mannsins í Keflavík í lok febrúar eftir að tilkynningar höfðu borist um einkennilegt háttalag hans á Facebook. Þar hafði hann birt myndir af sér vopnuðum og látið í veðri vaka að íbúð hans væri tengd sprengju.

Á heimili mannsins fundust hnífar, hlaðin kindabyssa, heimatilbúin rörasprengja og gaskútar sem hann hafði ýjað að að hann hygðist nota til sprengjugerðar.

Maðurinn er dæmdur fyrir að eiga vopnin og að ógna lögreglumönnunum með hníf. Þó er tekið fram að hann hafi verið nývaknaður og dauðhræddur og komist í ákafa geðæsingu þegar lögreglumennirnir réðust inn, grímuklæddir og vopnaðir. Það skuli virða honum til refsilækkunar. Þá er hann dæmdur fyrir hylmingu, með því að eiga þjófstolna byssu.

Verjandi mannsins sagði við aðalmeðferðina að lögregla hefði farið offari við rannsóknina og að hann hefði verið meðhöndlaður eins og fjöldamorðinginn Anders Breivik.

Dómurinn er sammála þessu upp að vissu marki, og segir „augljóst […] að miklu meira hafi verið lagt í rannsókn málsins en háttsemi ákærða gaf tilefni til,“ segir í dómnum. „Þessu til stuðnings bendir dómari sérstaklega á rannsókn á skrifum og hugarórum ákærða sem ekki hafa nein tengsl við þá háttsemi sem hann er ákærður fyrir.“ Vegna þessa er hann aðeins dæmdur til að bera þriðjung sakarkostnaðarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×