Innlent

Tvö óskyld mál tengd barnaníði

Mynd GVA
Lögreglunni á Akranesi bárust tvær kærur vegna kynferðislegrar misnotkunar á börnum, yngri en fimmtán ára, í síðustu viku.

Skessuhorn greindi frá málinu og þar segir að um tvö aðskilin mál sé að ræða. Báðar kærurnar voru lagðar fram hjá lögreglunni í Borgarfirði og Dölum og tengjast þær ekki á neinn hátt, að því er segir í Skessuhorni. Rannsóknardeild lögreglunnar á Akranesi hefur málin til meðferðar.

Lögreglan á Akranesi staðfestir við Fréttablaðið að tvær kærur séu þar til rannsóknar en vill ekki veita upplýsingar um einstök mál. - sv



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×