Fastir pennar

Siðaðra manna samfélag

Þúsundir ólögráða unglinga hefja þessa dagana nám í nýjum framhaldsskóla. Það er ákaflega mismunandi hvernig samnemendur þeirra taka á móti þeim, eins og kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Í sumum framhaldsskólum tíðkast enn „busavígslur" þar sem fólk er útatað í einhverju ógeði, látið innbyrða skemmdan eða óætan mat og atyrt og niðurlægt á ýmsan hátt. Annars staðar er tekið á móti krökkunum með kaffi eða kvöldvöku.

Kristín Linda Jónsdóttir blaðamaður skrifaði góða grein hér í blaðið fyrr í vikunni, þar sem hún gerir „hefðir" sumra framhaldsskóla að umtalsefni, undir fyrirsögninni „Þegar niðurlæging og ofbeldi er fyndið og flott".

„Einmitt núna er þetta skipulagða ferli niðurlægingar og jafnvel ofbeldis fram undan hér á landinu okkar. Settar eru upp aðstæður þar sem börn eru í besta falli útilokuð frá ákveðnum svæðum á eigin vinnustað, flokkuð óæðri, látin lúta höfði fyrir böðlum sínum, þjóna þeim og sýna þeim undirgefni, ganga innan þröngrar línu, skríða, ganga í bandi eða þau gerð að aðhlátursefni," skrifar Kristín. „Í versta falli er þeim misboðið með beinu ofbeldi, þvinguð til innbyrðingar, bundin saman eða við staur, ötuð ógeði, hífð upp í kös með krana í fiskineti og bleytt með háþrýstidælu, neydd ofan í kar með slori, kaffærð."

Það er rétt hjá Kristínu Lindu að þessi framkoma eldri bekkinga, sem flestir teljast fullorðið fólk, við ólögráða börn er utan við allt siðferði. „Fyrirslátturinn er hefðir, ómenning og sú neikvæða siðvenja að til að verða fullgildur í hópi skuli einstaklingur niðurlægður til hlýðni og ótta við þá sem fyrir eru. Að ekki sé talað um rökleysuna að þetta hafi alltaf verið svona og að þeir sem hafi eitt sinn verið niðurlægðir sem busar hafi rétt á að vera böðlar og niðurlægja aðra. Hvaða bull er þetta?" skrifar hún.

Skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands, þar sem vatni var sprautað á nýnema, þeir látnir baða sig í slori og ís og velta sér upp úr drullu, er greinilega ósammála. „Eigum við ekki að segja að þetta sé hefð og hefðir miða ekkert alltaf að því sem er uppbyggilegt," segir hann í Fréttablaðinu í dag. Og svo finnst nýnemunum þetta víst alveg mátulegt, segir skólameistarinn. Hann er þá líklega að gleyma því hvað það getur verið erfitt, ekki sízt á þessum aldri, að taka sig út úr hópnum og neita að taka þátt í hefðinni ef manni finnst hún niðurlægjandi.

Það er gott hjá krökkum, sem vilja ekki láta fara illa með sig, að taka ekki þátt í þessum athöfnum. Það er gott hjá foreldrum sem vilja ekki láta fara þannig með börnin sín að segja þeim bara að sleppa því. Og allra bezt er þegar forsvarsmenn framhaldsskóla átta sig á því að ofbeldi og niðurlæging á aldrei heima í skólanum og gera allt slíkt útlægt.

Það á að bjóða krakkana velkomna í samfélag, sem við verðum að vona að sé sæmilega siðað. Þá verða þeir eldri líka að haga sér í samræmi við það.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×